Uppskriftir
Skráðu þig á póstlistann:


|
Uppskriftir


Rabarbarasulta.
Gömul og hefðbundin uppskrift sem getur ekki klikkað. Auðveld og hentar einstaklega vel í bakstur eða með kjöti.
Innihald
1 kg. Rabarbari
700 gr. Strásykur
Aðferð
Þvoið og hreinsið rabarbaraleggina og skerið í bita 1 til 2 cm. langa. Setjið rabarbarann ásamt sykrinum í opinn pott, látið sjóða við meðal, hrærið í af og til. Suðu má áætla u.þ.b. 1 klst. fyrir eitt kíló, veltur þó mikið á suðuhita. Sultan verður dekkri eftir því sem hún sýður lengur. Þykkt sultu er smekksatriði, athugið að hún þykknar sama og ekkert við kólnun. Sultuna er besta að setja vel heita á sótthreinsaðar krukkur og loka strax, þá þétta þær sig sjálfar.

Reyniberjahlaup.
2 ltr. Reyniber
1 stk. Epli
5 dl. Vatn
1 – 1,5 kg. Sykur
Vel þroskuð berin fryst í sólarhring, jafnvel lengur. Síðan látin liggja í köldu vatni í þrjá sólarhringa til að ná remmu úr berjunum, skipta þarf oft um vatn. Berin soðin ásamt eplabitum í vatninu þar til þau eru farin að mýkjast vel. Gott að hafa nokkra stilka með til að fá hleypiefni. Síið í gegnum fínt sigti eða grisju. Sykurinn látinn bráðna í vökvanum og haldið vægri suðu í ca. 30 mín. eða þar til sykurinn er vel uppleystur.
Veiðið froðuna ofan af. Bæta má við sultuhleypi ef þið teljið þörf á því. Setjið vel heitt á hreinar krukkur og lokið. Geymið í kæli.

Rabarbarabaka.
400 gr. rabarbari
½ dl. hveiti
2 stk. egg
2 ½ dl. sykur
1 ¾ dl. hveiti
1 ½ dl. púðursykur
50 gr. smjör
Rababari þvegin og skorin í ca. 2 cm. bita. Blandið saman rababara, hveiti, sykri og eggjum. Setjið í smurt eldfast mót ca. 24 cm í þvermál. Púðursykri og hveiti blandað saman ásamt smjörinu, blöndunni dreift yfir rabarbarann. Bakað við 200°C hita í ca. 45 mín.
Berið fram með ís.

Bláberjamauk.
1 kg. bláber/aðalbláber
375 gr. sykur
Berin eru hreinsuð og sett í pott ásamt sykrinum.
Soðið í 15-20 mín.
Maukið er síðan sett sjóðandi heitt í vel heitar krukkur og þeim lokað.

Rifsberjasulta.
1 kg rifsber
750 gr sykur
1/2 bolli vatn
Gott að búa til soð af nokkrum stönglum, grænjöxlum og hálfþroskuðum berjum
til að fá soð með náttúrulegu hleypiefni .
Rifsberin sett í pott með síuðu soðinu og sett til suðu.
Sykri bætt í þegar suðan er komin vel upp
Suðutíminn er u.þ.b. 5 - 20 mínútur.
Berin kramin að vild þar til æskileg áferð er fengin.
Sultan sett vel heit á sótthreinsaðar krukkur þá þétta þær sig sjálfar.

Áhugaverðir tenglar

Nokkrar uppskriftir með berjum hér: 29/8
Fjölbreyttar berjauppskriftir og skemmtilegur fróðleikur um ber í íslenskri náttúru. Rétti tíminn að líta þar inn. 29/8
Ávaxtabíllinn sendir tilbúinn mat á hverjum virkum degi til fyrirtækja. 1/8
Bananar eru hollir og lystugir, handhægir sem nesti í dagsins önn. Fróðleikur og uppskriftir á Bananar.is 
Hvers vegna eru ávextir og grænmeti dýrara á Íslandi en öðrum Evrópulöndum ? Góð grein um málið. 

Nýr áhugaverður matarvefur.
|






|