-

................................... ... ... ... ..PPBakstur - ....
-

Heim

Fiskur

Fuglar

Kjöt

Grill

Grænmeti

Ávextir

Súpur

Pasta

Bakstur

Drykkir

Tilboðin

Tenglar

-

Uppskriftir

. Piparkökur með heilhveiti.
. Lagterta brún.
.
Berlínarbollur
.
Hjónabandssæla.
.
Rabarbara og kókoskaka.
.
Rice Krispies kökur.
.
Brownies með Baileys.
.
Flatkökur.
.
Banana skúffukaka.
.
Sacher terta.
.
Morgunbollur
.
Epla-skúffukaka.
.
Pizzabotn
.
Skonsur.
. Rjómabollur með .................Kardimommum.
.
Vatnsdeigsbollur.
.
Musli.
.
Pönnukökur.
.
Einfaldar Vöfflur.
.
Banana muffins.
. Laufabrauð.
.
Rúgbrauð.
.
Kleinur.
.

 



-
. Smákökur
. Tertur

-

Vefsíða um mat.

-

. Mál og vog
. Ofnhiti

 

-

. Aðalréttir
. Forréttir
. Eftirréttir
. Skyndiréttir
. Smáréttir
. Meðlæti
. Pasta
. Grænmeti
. Ávextir
. Súpur/ sósur
. Drykkir
. Krydd
. Fróðleikur
-



-

Skráðu þig á póstlistann:
Þitt netfang Fornafn
-

 

Uppskriftir.
-


Piparkökur með heilhveiti.

Piparkökur með heilhveiti.


Dálítið óvenjulegt að nota heilhveiti, en mjög gott. Geymast vel og eru bestar ef þær fá að brjóta sig aðeins.
Innihald.
225 gr. Smjörlíki
300 gr. Strásykur
2 stk. Egg
230 gr. Sýróp
480 gr. Heilhveiti
1 msk. Matarsóda
1 msk. Lyftiduft
1½ tsk. Engifer
1½ tsk. Múskat
1 tsk. Kanill
1 tsk. Negull
1 tsk. Allrahanda
100 gr. Strásykur

Aðferð.
Byrjið á að hita ofninn í ca. 175° C. Sykur og smjörlíki þeytt létt og ljóst. Sýrópi (½ græn dós) bætt út í ásamt eggjum, einu í senn. Sigtið þurrefnin saman og bætið saman við. Mótið litlar kúlur úr deiginu og þrýstið í strásykurinn sem eftir er. Raðið kökunum á smurðan bökunarpappír. Hafið 5 cm. millibil þar sem kökunar renna aðeins út. Bakið í miðjum ofni í u.þ.b. 10-15 mín. Kælið. Kökurnar eru betri á öðrum degi, þá hafa þær brotið sig.

Aftur upp.
Aftur upp.
-
Brún lagkaka.

Lagterta brún.

Gamla góða, brúna lagtertan sem flestir elska. Sígild á kaffiborðið og vekur jafnvel upp sælar minningar.
Innihald
1 kg. Hveiti
500 gr. Smjörlíki
600 gr. Púðursykur
4 stk. Egg
2 msk. Kakó
2 tsk. kanill
2 tsk. Negull
2 tsk. Matarsódi
5 dl. Mjólk
Aðferð
Látið smjörlíkið mýkjast við stofuhita, hrærið það ásamt sigtuðum flórsykri þar til hræran er létt, þá er eggjunum bætt saman við, einu í senn og hrært vel á milli. Sigtið þurrefnin sem eftir eru og hrærið varlega út í, þynnið með mjólk. Ekki hræra lengi eftir að hveitið er komið saman við svo kakan verði ekki seig. Deiginu skipt í 4 hluta. Ef ekki er til lagkökuform þá má jafna deighlutunum út í svipaða þykkt og ummál á 4 ofnplötur klæddar smurðum bökunarpappír. Bakað í miðjum ofni við 200°C. í u.þ.b. 12-15 mín. Kælið og leggið saman með smjörkremi, best að láta kökuna standa í eina 12 tíma og jafna sig. Tertan geymist vel í frysti, verður jafnvel enn betri.
Smjörkrem - Innihald
300 gr. Smjörlíki
2 stk. Eggjarauður
Vanilludropar.

Smjörkrem - Aðferð
Mjúkt smjörlíkið hrært með sigtuðum flórsykri, eggjarauðum bætt út í og bragðbætt með vanilludropum.
Aftur upp.
Aftur upp.
-

Berlínarbollur.

Berlínarbollur.

Þessar einstaklega ljúfengu bollur getur hver sem er bakað. Hægt er að nota aðra fyllingu, t.d. er gott súkkulaði skemmtileg tilbreyting.
Innihald
300 gr. Hveiti
2 msk. Strásykur
1 dl. Mjólk
80 gr. Smjörlíki
2 stk. Egg
4 tsk. Þurrger
1 hnífsodd Salt
Aðferð
Blandið í skál gerinu og hveiti, myljið mjúku smjörlíkinu saman við ásamt sykri og salti. Hrærið mjólk og öðru egginu saman við og hnoðið deigið sprungulaust. Hyljið skálina með loki, plastfilmu eða röku stykki og látið deigið lyfta sér í u.þ.b. 20-25 mín. Fletjið deigið út og skerið kökur undan litlu glasi eða álíka. Eggið sem eftir er slegið saman og brúnirnar á kökunum smurðar með því. Á miðja aðra hverja köku er sett ca. ½ teskeið af góðu berjamauki, annari köku hvolft yfir, þrýstið brúnunum vel saman, látið lyfta sér aftur í 10-15 mín. Steikið bollurnar gullinbrúnar líkt og kleinur í vel heitri olíu, ca. 180°C. Takið upp með gataspaða og látið á eldhúspappír eða annan pappír sem dregur í sig olíuna. Sumum finnst gott að sigta smávegis flórsykur yfir bollurnar meðan þær eru heitar eða velta þeim upp úr sykri.
Aftur upp.
Aftur upp.
-


Hjónabandssæla

Hjónabandssæla.

Gömul og góð kaka sem sælkerar hafa kunnað að meta í gegnum tíðina. Mjög einföld og þægileg í vinnslu.
Innihald
240 gr. Smjör
200 gr. Strásykur
280 gr. Hveiti
150 g.r Haframjöl
1 tsk. Matarsódi
1 stk. Egg
4 - 5 msk. Rabarbarasulta
Aðferð
Hveiti, haframjöli, sykri og matarsóda blandað saman. Látið smjörlíkið linast við stofuhita, myljið það saman við þurrefnin ásamt egginu. Hnoðið. Skiptið deiginu í þrjá hluta, tveir hlutar flattir út í sitthvort lausbotna tertuformið, vel smurð. Smyrjið rabarbarasultu yfir deigið, fletjið afganginn af deiginu út á hveitistráðu borði og skerið í ca. 1 1/2 - 2 cm. breiðar ræmur, raðið þeim með sambærilegu bili á sultuna, aftur þvert á svo myndi tígla og meðfram brúnunum, þrýstið saman. Bakað í miðjum ofni við 200°C hita í u.þ.b. 45 mín.

 

Aftur upp.
Aftur upp.
-


Rabarbara og kókoskaka.

Rabarbara og kókoskaka.

Þessa ljúfengu köku er hægt að útbúa með góðum, jafnvel 2ja daga fyrirvara, og eiga tilbúna í ískápnum til að skella í ofninn þegar hentar. Berið fram með þeyttum rjóma, hvort sem er volga eða kalda.
Innihald
225 gr. Hveiti
275 gr. Strásykur
100 gr. Kókosmjöl
125 gr. Smjör
3 stk. Egg
½ bolli Mjólk
½ tsk. Vanilludropart
1 bolli Rabarbari saxaður
2 leggir Rabarbari
2 msk. Hrásykur
Aðferð
Hitið ofninn í 180°C. Bræðið smjörið og kælið. Þeytið eggin létt. Hveiti, sykur og kókosmjöl blandað í skál, hrærið út í smjöri, eggjahræru og mjólk ásamt vanilludropum og blandið öllu vel saman. Smyrjið ca. 20 sm. tertuform eða klæðið með bökunarpappír, jafnið u.þ.b. helming deigsins í formið, söxuðum rabarbaranum dreift yfir og rest af deiginu þar yfir. Rabarbaraleggir bútaðir í ca. 5 sm. bita og jafnað yfir kökuna og hrásykri stráð yfir allt. Bakið við 180°C í u.þ.b. 60 mín. Þegar kakan er bökuð er gott að leifa henni hvíla smá stund áður en hún er tekin úr forminu. Má frysta.
Aftur upp.
Aftur upp.
-


Rice krispies muffins

Rice Krispies kökur.

Þessar Rice Krispies kökur hafa slegið í gegn í öllum veislum þar sem börn eru meðal gesta, fullorðna fólkið kann einnig að meta þær. Hentar einnig vel í kransaköku eða tertubotn.
Innihald
500 gr. Nóa Síríus súkkulaði
1 ds. Síróp (grænu dósirnar).
150 gr. Smjör
280 gr. Rice Krispies
Aðferð
Setjið saman í pott smjör, síróp og súkkulaði og hitið þar til súkkulaðið er vel bráðið, hrærið stöðugt í á meðan. Bætið Rice Krispies saman við og hrærið vel í svo allt blandist vel.

Muffinskökur: Góð teskeið sett í hvert muffinsmót og látið kólna.

Tertubotn: Tertuform smurt vel og fyllt með deiginu og látið kólna.
Oft settur á svamp-tertubotn með rjóma og ávöxtum á milli.

Kransakaka: Setjið í vel smurð kransakökuform og látið kólna. Hringirnir settir saman með bráðnu súkkulaði og skreyttir að vild.


Aftur upp.
Aftur upp.
-


Brownies með Baileys.

Brownies með Baileys.

Skvetta af Baileys gefur þessum vinsælu kökum tilbreytingu.
Innihald
80 gr. Hveiti
80 gr. Kakóduft
300 gr. Súkkulaði dökkt
4 stk. Egg
210 gr. Strásykur
240 gr. Smjör
8 msk. Baileys líkjör
Aðferð
Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði. Þeytið sykur og egg létt og ljóst og bætið bræddu smjöri varlega út í, einnig súkkulaðinu í mjórri bunu.  Sigtið þurrefnin og blandið saman við hræruna. Bætið Baileys út í deigið. Deigið sett í vel smurða ofnskúffu og bakað við 180°C heitum ofni í ca. 30 mín. Þegar kakan er bökuð er hún tekin úr forminu og kókosmjöli stráð yfir. Ekki er verra að smyrja smá Baileys á kökuna áður en kókosmjöli er stráð á.
Aftur upp.
Aftur upp.
-

 


Pönnukökur.

Pönnukökur.



Innihald
4 bollar Hveiti
3 bollar Strásykur
100 gr. Smjörlíki
3 stk. Egg
1/2 tsk. Vanilludropar
1/2 tsk. Lyftiduft
1/2 bolli Kaffi
Mjólk eftir þörfum
Aðferð
Bræðið smjörlíkið og kælið. Sigtið þurrefnin og hrærið með kaffinu og mjólk, bætið eggjum og vanilludropum saman við, að síðustu er smjörlíkinu bætt út í. Þynnið að vild með mjólk. Bakið þunnar kökur á pönnukökupönnu.
Aftur upp.
Aftur upp.
-


Flatkökur.

Flatkökur.

Fátt er lystugra en þetta þjóðlega bakkelsi.  
Verður að baka í vel ræstu rými þar sem talsverður reykur vill myndast.

Innihald
4 bollar Rúgmjöl
2 bollar Hveiti
2 bollar Haframjöl
2 msk. Strásykur
1/2 tsk. Matarsóda
1/2 tsk. Salt
1/2 ltr. Vatn
Aðferð
Sjóðið vatnið. Blandið þurrefni saman í skál, hellið hluta af sjóðandi heitu vatninu yfir og hrærið saman, bætið við vatni eftir þörfum. Hnoðið deigið frekar lint og skiptið í jafna hluta og fletjið út þunntá hveitistráðu borði og skerið kökur undan diski. Pikkið kökurnar með t.d. gaffli og bakið á vel heitri plötu eða pönnu. Snúið oft þar til þær eru fallega brúnar. Kökurnar verða mýkri sé þeim brugðið strax undir rennandi vatn. Flatkökur geymast vel í frysti.
Aftur upp.
Aftur upp.
-


Banana skúffukaka.

Banana skúffukaka.


2 stk. Egg
3 dl. Strásykur
2 tsk. Vanillusykur
3 stk. Bananar
2 stk. Appelsínur
1 dl. Súrmjólk
3 1/2 dl. Hveiti
3 tsk. Kardimommur
5 tsk. Lyftiduft
50 gr. Súkkulaði
Þeytið egg, sykur og vanillusykur létt og ljóst. Rífið appelsínubörk og kreistið safa úr appelsínum og bætið hvoru tveggja út í. Maukið 2 vel þroskaða banana og bætið út í ásamt súrmjólk. Þurrefnin sigtuð saman og blandað varlega saman við deigið. Setjið í litla smurða ofnskúffu eða form, skerið bananann sem eftir er í frekar þunnar sneiðar og raðið yfir deigið. Bakið við 180°C hita í u.þ.b. 40 mín. Látið kólna og skreytið með bræddu súkkulaðinu.

 

Aftur upp.
Aftur upp.
-

Sacher tertusneið.

Sacher terta.

Botnar Innihald
200 gr. Súkkulaði 70%
8 stk. Eggjarauður
10 stk. Eggjahvítur
125 gr. Smjör
140 gr. Strásykur
125 gr. Hveiti
Salt á hnífsoddi
Tertubotnar- Aðferð
Smjör og súkkulaði brætt yfir heitu vatnsbaði. Eggjarauður hrærðar vel og súkkulaðinu bætt saman við. Stífþeytið eggjahvíturnar ásamt strásykri og salti. Blandið þriðjungi eggjahvítu-blöndunar varlega saman við súkkulaðihræruna, síðan því sem eftir er. Sigtið hveitið og hrærið varlega smátt og smátt saman við. Smyrjið vel tvö tertuform og bakið í u.þ.b. 45 mín. 180°C heitum ofni.
Krem Innihald
150 gr. Súkkulaði 70%
2 ½ dl. Rjómi
150 gr. Flórsykur
2 msk. Vanillusykur
1 stk. Egg
10 msk. Apríkósumauk
Krem - Aðferð 
Bræðið súkkulaði og rjóma, ásamt flórsykri og vanillusykri saman í potti við vægan hita og hrærið í uns allt er vel bráðið, hitið áfram í ca. 5 mín. Sláið eggið saman og hrærið saman við það 5 msk. af súkkulaðiblöndunni og blandið því síðan saman við alla súkkulaðiblönduna, hrærið vel. Þegar blandan er samfelld er hún tekin til hliðar og látin kólna. Leggið tertubotnana saman með apríkósumauki á milli. Súkkulaðikreminu smurt á tertuna með spaða og látin í kæli í u.þ.b. 4 klst. Tekin fram nokkru áður en hún skal borinn fram. Hafið þeyttan rjóma með kökunni.
 
Aftur upp.
Aftur upp.
-

Morgunbolla

Morgunbollur


750 gr. Hveiti
75 gr. Hveitiklíð
1 msk. Strásykur
1 tsk. Salt
1 bréf Þurrger
6 dl. Undanrenna
2 msk. Olía
1 stk. egg
Sigtið saman þurrefnin í skál, takið bolla af hveiti frá til að hnoða með síðar. Bætið undanrennu og olíu út í og hrærið vel saman. Látið lyfta sér í ca. 40 mín. Stráið hveitinu sem tekið var frá á borð og hnoðið deigið slétt og sprungulaust. Mótið lengju og hlutið niður í ca. 20 jafna hluta og mótið bollur úr þeim. Raðið bollunum á smurða bökunarplötu eða klædda bökunarpappír og látið lyfta sér í u.þ.b. 30 mín. Sláið saman eggið og penslið bollurnar með því. Bakið í miðjum ofni í 15- 20 mín. við 200°C hita.
Aftur upp.
Aftur upp.
-


Eplaskúffukaka.

Epla-skúffukaka.

250 gr. Smjörlíki
250 gr. Strásykur
4 stk. Egg
400 gr. Hveiti
3 tsk. Lyftiduft
1 tsk. Möndludropar
1 tsk. Vanilludropar
1-1½ dl. Mjólk
4 stk. Epli
2 msk. Kókos
Kanillsykur
Hrærið saman sykur og smjörlíki, létt og ljóst ásamt dropunum. Bætið eggjum saman við einu í senn. Sigtið þurrefnin og bætið varlega út í og þynnið með mjólk eftir þörfum. Afhýðið eplin og skerið í frekar þunnar sneiðar og raðið yfir deigið, stráið kanillsykri og kókos yfir. Bakið í vel smurðri ofnskúffu við 180°C í 30-40 mín.
Aftur upp.
Aftur upp.
-


Pizza

Pizzabotn

4 bollar Hveiti
1 bréf Þurrger
1 tsk. Salt
2 msk. Ólífuolía
3/4 bolli Vatn
Aðferð
Blandið í skál þurrgeri og salti ásamt 3 bollum af hveiti. Hrærið olíu og vatni saman við hveitið og hnoðið, notið eftir þörfum hveitið sem eftir er og hnoðið þar til deigið verður meðfærilegt og sprungulaust. Látið standa í u.þ.b. 1/2 klst. á hlýjum stað undir röku viskastykki eða loki. Hnoðið að nýju og fletjið út í pizzu. Setjið á bökunarplötu klædda bökunarpappír og dreifið sósu, fyllingu og ost á pizzuna eftir smekk. Bakið við 220°C í 15-20 mín.
Aftur upp.
Aftur upp.
-

Vöfflur

Einfaldar Vöfflur.

4 bollar Hveiti
1 bolli Strásykur
100 gr. Smjörlíki
4 tsk. Lyftiduft
3 stk. Egg
Vanilludropar
Aðferð
Smjörlíki brætt og kælt. Hveiti, sykri og lyftidufti blandað saman, eggjum hrært
saman við ásamt vanilludropum, smjörlíki. Þynnið með mjólk eftir þörfum, haft
heldur þykkara en pönnukökudeig. Bakið fallaga brúnar kökur í vöfflujárni.
Aftur upp.
Aftur upp.
-


Skonsur bakaðar á pönnu.

Skonsur.

Skonsur eru alltaf góðar bæði nýjar og sem nesti, með góðu áleggi.
Innihald
8 dl. Hveiti
4 msk. Strásykur
6 tsk. Lyftiduft
1½ tsk. Salt
3 stk. Egg
2 dl. Mjólk
2 dl. Súrmjólk
4 msk. Olía
Aðferð
Þurrefnin sigtuð saman, hrærið olíu, eggjum og mjólk saman við uns deigið verður kekkjalaust. Hafið deigið það þykkt að það rétt drjúpi. Setjið á pönnuköku-pönnu og bakið fyrri hliðina þar til seinni hliðin er nánast þurr, snúið og bakið seinni hliðina. 
Aftur upp.
Aftur upp.
-

Rjómabolla úr gerdeigi.

Rjómabollur með Kardimommum

8 dl. Hveiti
1 bréf Þurrger
3 msk. Strásykur
1/2 tsk. Kardimommuduft
1 tsk. Salt
2 dl. Mjólk
75 gr. Smjör
2 stk. Egg
Mjólkin hituð ásamt smjörinu í ca. 38-40°C, ekki heitara. Sigtið saman þurrefnin og geymið 1-2 bolla til að hnoða með. Hrærið ásamt öðru egginu saman við volga mjólkina, hrærið vel. Stráið hveitinu sem var tekið til hliðar á borð og hnoðið deigið jafnt og sprungulaust. Deigið sett í skál og plastfilma eða rakt
viskastykki yfir, látið lyfta  sér á hlýjum stað í 30-40 mín. Að því loknu er deigið hnoðað aðeins og mótaðar 12 bollur, raðið þeim á bökunarplötu klædda smjörpappír og látið lyfta sér að nýju í 10 - 15 mín. hrærið saman eggið sem
eftir er og penslið bollurnar með því, bakið í 10-12 mín. við 200°C hita. Bollurnar kældar á grind, skornar í tvennt og ýmist flórsykri stráð yfir, glassúri eða súkkulaðihjúp smurt á þær.

Aftur upp.
Aftur upp.
-

Rjómabolla

Vatnsdeigsbollur.

80 gr. Smjörlíki
2 dl. Vatn
100 gr. Hveiti
3 stk. Egg
Salt af hnífsoddi.
Sjóðið vatn og smjörlíki, bætið salti í þegar smjörlíkið er bráðið. Hrærið hveiti út í, hrærið duglega þar til deigið losnar frá potti og sleif. Kælið aðeins áður en eggjum er hrært saman við einu í senn, hrærið vel á milli, best að nota hrærivél eða þeytara. Deigið sett á bökunarplötu með skeiðum, hafið gott bil á milli. Sett í 200°C heitann ofn í u.þ.b. 20-30 mín. ekki opna ofninn fyrstu 20 mín. þá getur degið fallið. Þegar bollurnar líta út fyrir að vera bakaða hafa fengið gullin lit, er gott að taka eina bollu að skoða áður en allar eru teknar úr ofninum. Sigtið flórsykur yfir bollurnar eða smyrjið með glassúri. Fyllið með t.d. berjasulu og rjóma eða ís.
 
Aftur upp.
Aftur upp.
-


Skál af góðu musli.

Musli.

500 gr. Haframjöl
200 gr. Hveitikím
175 gr. Hveitiklíð
100 gr. Kókosmjöl
100 gr. Sólblómafræ
150 gr. Sesamfræ
50 gr. Heslihnetuflögur
3 dl. Rúsínur
400 gr. Púðursykur
1 dl. Vatn
21/2 dl. Matarolía
2 tsk. Vanilludropar
Púðursykur leystur upp vatninu, olíu og vanilludropum bætt út í. Öllu nema rúsínum blandað saman við púðursykurlögin og sett í ofnskúffu. Bakið í 50-60 mín. við 150°C hita. Athugið að hræra oft í blöndunni. Rúsínum bætt við að lokinni bökun. Geymið í vel þéttu íláti.
Aftur upp.
Aftur upp.
-
 


Banana muffins

Banana muffins.

75 gr. Strásykur
60 ml. Olía
2 stk. Egg
2 stk. Bananar þroskaðir
1 tsk. Vanilludropar
190 gr. Hveiti
1 tsk. Matarsódi
½ tsk. Salt
Setjið sykur, olíu og egg í skál og hrærið saman með þeytara, létt og ljóst. Því næst eru stappaðir bananar ásamt vanilludropum hrært saman við. Þurrefnin sigtuð og sett varlega saman við. Dreifið deiginu jafnt í muffins form. Bakið í u.þ.b. 20 mín. við  190° C. hita. Góð leið til þess að athuga hvort kökurnar séu tilbúnar er að stinga tannstöngli í miðja kökuna og ef hann kemur hreinn til baka eru kakan til.
Aftur upp.
Aftur upp.
-

Laufabrauð.

Laufabrauð.

1 kg. Hveiti
1 msk.  Sykur
1 ltr.  Mjólk
50 gr. Smjör
1 tsk. Lyftiduft
Salt af hnísoddi
Djúpsteikingafeiti.
Hitið mjólk að suðu, smjör, sykur og salt sett út í. Sigtið saman hveiti og lyftiduft og bætið saman við mjólkina, hnoðið mjúkt og sprungulaust. Fletjið út á hveitistráðu borði, mjög þunnt. Skerið undan diski og skerið mynstur í kökurnar annaðhvort með hnífi eða laufabrauðsjárni, flettið laufunum við og þrýstið örlítið niður. Pikkið kökurnar svo þær bólgni ekki upp við steikingu. Steikið í vel heitri feitinni líkt og kleinur, snúið mynsturhliðinni niður í upphafi snúið kökunum við. Þegar kökurnar hafa fengið æskilegann lit eru þær settar á klút og létt farg sett á þær t.d. pottlok eða álíka. Vinsælt er að steikja afskurð, svonefnda partar og narta í á meðan á steikingu stendur.
Aftur upp.
Aftur upp.
-

Rúgbrauð.

Rúgbrauð.


5 bollar rúgmjöl
3 bollar heilhveiti
1- 2 l. súrmjólk
4-5 tsk. matarsódi
2-3 tsk salt
500 g sýróp
Blandað öllu vel saman og hrærið vel.
Setjið deigið í 4 líters fernur, fyllið þær að hálfu.
Bakið við 100°C í 10-12 tíma.

Aftur upp.
Aftur upp.
-

Kleinur.

Kleinur.

100 gr. Smjörlíki
1 1/2 bolli Sykur
6 bollar Hveiti
1 tsk. Matarsódi
3 tsk. Lyftiduft
11/2 tsk. Vanillidropar
2 stk. Egg
Mjólk
Smjörlíki brætt og pískað saman við eggin. Hnoðað, vætt í með mjólkinni eftir þörfum. Flatt út og mótaðar kleinur. Steiktar í vel heitri feiti.

Aftur upp.
Aftur upp.

-
Áhugaverðir tenglar
-

. Ýmsar leiðbeiningar varðandi bakstur og fleira úr bókinni:
Bökun í heimahúsum eftir Helgu Sigurðardóttur, á vefnum: Amma gamla á netinu. Skoða síðuna.
14/9
. Bakstursleiðbeiningar á brauði, þörf lesning. Skoða síðuna
. Á CafeSigrún er hægt að finna fullt af hollum uppskriftum, sem innihalda ekki hvítt hveiti, ger eða hvítan sykur. Skoða síðuna
. Kornax er með ýmsan fróðleik um bakstur á sinni heimasíðu sem vert er að skoða.  Skoða nánar
. Glæsileg síða: Hjá Jóa Fel. ef þú ert í veisluhugleiðungum. Skoða síðuna
. Mjólkursamsalan er með fjölda bökunar uppskrifta á sinni heimasíðu. Skoða síðuna
. Nokkrar uppskriftir á matavefnum mbl.is. Skoða síðuna
. Bloggsíða með nokkrum uppskriftur af bakstri. Skoða síðuna
. Á vefnum Maður lifandi.is eru margar uppskriftir af hollu bakkelsi. Vert að skoða þessar uppskriftir. Skoða síðuna
. Uppskriftir á Gaman og alvara, bæði brauð og kökur í útvali. Skoða síðuna
. Áttu brauðvél? Hér eru nokkrar uppskriftir fyrir brauðvélar. Skoða síðuna

Aftur upp.
Aftur upp.
-

-

Gott brauð.

-

Kex er líka gott.

-

 

-

 

 

 

-

 

Heim

Senda póst.

 

Síðast uppfært: 08.12.2009

Vefurinn er í stöðugri vinnslu og endurnýjun.


.......Maturinn.com er með hýsingu hjá KIOSK.ws....................................
Traust vefhýsing hjá KIOSK.
.....
 
 
Maturinn.com
Elías Stefánsson
Reykjavík.
Sími: 695 2724
maturinn@maturinn.com