-

................................... . PBakstur - Smákökur ....
-

Heim

Fiskur

Fuglar

Kjöt

Grill

Grænmeti

Ávextir

Súpur

Pasta

Bakstur

Drykkir

Tilboðin

Tenglar

-

Uppskriftir

. Kókostoppar
.
Lionbar kökur.
.
Sörur
.
Sörur 200stk.
. Piparkökur
.
Lakkrískurl-toppar
. Endapunktar.
.
Kornflextoppar
. Súkkulağibitakökur.
. Loftkökur.

-

. Tertur.
. Brauð.
.
Kleinur.
-
. Aðalréttir
. Forréttir
. Eftirréttir
. Skyndiréttir
. Smáréttir
. Meðlæti
. Pasta
. Grænmeti
. Ávextir
. Súpur/ sósur
. Drykkir
. Krydd
. Fróðleikur
-

Skráðu þig á póstlistann:

Þitt netfang Fornafn
-

Uppskriftir.
-


Kókostoppar

Kókostoppar

3stk. Egg
225 gr. Strásykur
300 gr. Kókosmjöl
100 gr. Suðusúkkulaði
Sykur og egg þeytt létt og ljóst. Kókosmjöli og gróft söxuðu súkkulaði bætt varlega út í. Sett með teskeið í toppa á smurða bökunarplötu. Bakið ljósbrúnar við 170°C í u.þ.b.15 mín.  
Aftur upp.
Aftur upp.
-

Lionbar

Lionbar kökur.


160 gr. Hveiti
¼ tsk. Matarsódi
150 gr. Púðursykur
1 stk. Egg
100 gr. Suðusúkkulaði
100 gr. Lion bar
80 gr. Smjörlíki
½  tsk. Salt
Vanilludropar
Hrærið saman smjörlíki og sykur, bætið eggjum og vanilludroðum út í. Sigtið þurrefnin og blandið saman við smátt og smátt. Saxið súkkulaðið og setjið saman við. Sett með teskeið á smurða bökunarplötu. hafið gott bil á milli því kökurnar renna út. Bakið við 175°C í u.þ.b. 8 mínútur. Varist að ofbaka.
Aftur upp.
Aftur upp.
-

Sörur. (U.þ.b. 100 stk.)

400 gr. Möndlur
6 dl.  Flórsykur
5 stk. eggjahvítur
Möndlurnar malaðar, ekki í duft. Flórsykur sigtaður og bætt í. Eggjahvítur stífþeyttar og blandað varlega saman við. Sett með teskeið á bökunarplötu klædda smjörpappír og bakað við 180°C í u.þ.b. 10 mín. Ef notaður er blástursofn hafið þá hitann 160°C.
Kremið.
5 stk. Eggjarauður
125 gr. Smjör
½  dl. Strásykur
1½ msk. Kakóduft
½ msk. Neskaffi
Sjóðið vatn og sykur í einskonar síróp. Eggjarauður þeyttar og sírópinu hellt í mjórri bunu út í. Þeytið vel á meðan blandan kólnar, uns hún er létt og ljós. Sigtig kakó og kaffiduftið og hrærið saman við mjúkt smjörið svo verði kekkjalaust og bættið því saman við eggjablönduna. Smyrjið kreminu á botnana á kökunum og frystið.
Þegar kökurnar eru orðnar vel stýfar er kremhlutanum dýft í súkkulaðihjúp sem er gerður úr ca. 250 gr. af góðu hjúpsúkkulaði sem er brætt yfir vatnsbaði og haft rétt volgt svo hjúpurinn verði ekki of þunnur. Geymast vel í frysti.
Aftur upp.
Aftur upp.
-


Sörur.

 

Sörur. (U.þ.b. 200 stk.)

600 gr. Möndlur  
500 gr. Flórsykur
11 – 12 stk. Eggjahvítur  
Möndlurnar malaðar, ekki í duft. Flórsykur sigtaður og bætt í. Eggjahvítur stífþeyttar og blandað varlega saman við. Sett með teskeið á bökunarplötu klædda smjörpappír og bakað við 180°C í u.þ.b. 10 mín. Ef notaður er blástursofn hafið þá hitann 160°C.
Ca. 200 stk.
Kremið
11 – 12 stk. Eggjarauður
2 ¼ dl. Strásykur
2 ¼ dl. Vatn
500 gr. Smjör
3 msk. Kakóduft
1 msk. Neskaffi.
Sjóðið vatn og sykur í einskonar síróp. Eggjarauður þeyttar og sírópinu hellt í mjórri bunu út í. Þeytið vel á meðan blandan kólnar, uns hún er létt og ljós. Sigtig kakó og kaffiduftið og hrærið saman við mjúkt smjörið svo verði kekkjalaust og bættið því saman við eggjablönduna. Smyrjið kreminu á botnana á kökunum og frystið.
Þegar kökurnar eru orðnar vel stýfar er kremhlutanum dýft í súkkulaðihjúp sem er gerður úr góðu hjúpsúkkulaði sem er brætt yfir vatnsbaði og haft rétt volgt svo hjúpurinn verði ekki of þunnur. Geymast vel í frysti.
Aftur upp.
Aftur upp.
-

Piparkökustrákur.

Piparkökur

500 gr. Hveiti
250 gr. Sykur
1 stk. Egg
250 gr. Smjörlíki
375 gr. Sýróp
6 tsk. Lyftiduft
2 tsk. Matarsódi
1 tsk. Negull
1 tsk. Kanill
1 tsk. Kakó
1 tsk. Season all
1 tsk. Engifer
1 tsk. Hvítur pipar

Egg, sykur og sýróp hrært saman, þurrefnin sigtuð saman og blandað smátt og smátt saman við. Hnoðið deigið, fletjið fremur þunnt út og stingið út kökur með kökumótum. Raðið á Bökunarplötu plötu klædda smjörpappír eða vel smurða. Bakið í miðjum ofni við 175°C í u.þ.b. 12 mínútur. Þetta deig þarf ekki að standa og hvílast eins og algengt er með hnoðað deig.
Aftur upp.
Aftur upp.
-

Lakkrískurl-toppar.

3 stk. Eggjahvítur,
200 gr. Púðursykur,
150 gr.Rrjómasúkkulaði
2 poka Nóa lakkrískurl
Eggjahvítur stífþeyttar með sykri.
Öðrum innihaldsefnum blandað varlega út í.
Bakað í miðjum ofni við 150°C hita í u.þ.b. 20 mín.
Aftur upp.
Aftur upp.
-

 

Endapunktar.

U.þ.b. 30-35. stk.
250.gr. Möndlumassi
100.gr. Flórsykur
2 stk  Eggjahvítur
50.gr. Gráðostur rifinn
50.gr. Rjómaostur hreinn
1 tsk. Súrmjólk
Súkkulaði brætt
Möndlumassi og flórsykur hnoðað saman, eggjahvítum bætt smátt og smátt saman við. Rjómaostur, gráðostur og súrmjólk hrært saman og blandið í deigið. Hnoðið vel. Reynist deigið of þykkt má bæta við eggjahvítu, sé það of þunnt má þykkja það með flórsykri. Deigið sett með tsk. á vel smurða plötu eða klædda með  smjörpappír, bakið í miðjum ofni við u.þ.b. 200°C í 7 - 8 min. Kælið kökurnar og dýfið þeim í brætt súkkulaði. Ef vill má setja 1-2  msk. af serrí, koníaki eða góðum likjör út i deigið til bragbætis. Geymist best í frysti eða vel lokuðum plastpoka. Endapunktar eru oft notaðir sem eftirréttur með góðu kaffi og koníaki eða líkjör.

 

Aftur upp.
Aftur upp.
-

 

Kornflextoppar

4 stk. Eggjahvítur
2 bollar Púðursykur, ljós
4 bollar Kornflex
1/2 bolli Konsúmsúkkulaði
1/2 bolli Möndlu,r saxaðar
2 bollar Kókosmjöl
1 tsk. Vanilludropar
Hrærið eggjahvítur og púðursykur vel saman ásmt vanilludropum. Sigtið þurrefnin og blandið saman við eggjahræruna. Setjið með teskeið á smurða bökunarplötu eða klædda með smjörpappír. Bakið í miðjum ofni  við 175°C í ca 10-15 mín.
Aftur upp.
Aftur upp.
-

 

Súkkulaðibitakökur

1 bolli Hveiti
6 msk. Strásykur
6 msk. Púðursykur
1/2 tsk. Matarsódi
150 gr. Smjörlíki
1/2 tsk. Vanilludropar
1 stk. Egg
1/2 tsk. Salt
Vatn eftir þörfum
200 gr. Suðusúkkulaði
Sigtið saman hveiti, matarsóda og salt. Þeytið smjörlíkið með strásykri og
púðursykri létt og ljóst, bætið eggjum og vanilludropum ásamt örlitlu af vatni út í og þeytið áfram. Bætið þurrefnum smátt og smátt saman við, að lokum er frekar gróft söxuðu súkkulaði bætt saman við. Bakað í miðjum ofni við 175°C hita í 12-15 mínútur.
Aftur upp.
Aftur upp.
-

 

Loftkökur.

1 kg.  Flórsykur
3 msk. Kakóduft
1 tsk. Hjartarsalt
3 stk. Egg
1 tsk. Vanillilludropar
Hnoðið deigið og rennið í gegnum hakkavél hentar vel mót rifflað að ofan en slétt að neðanverðu. Bakið í miðjum ofni við 200°C í ca 10 – 12 mínútur.
Aftur upp.
Aftur upp.

-
Áhugaverðir tenglar
-

. Ýmsar leiðbeiningar varðandi bakstur og fleira úr bókinni:
Bökun í heimahúsum eftir Helgu Sigurðardóttur, á vefnum: Amma gamla á netinu. Skoða síðuna.
14/9
. Bakstursleiðbeiningar á brauði, þörf lesning. Skoða síðuna
. Á CafeSigrún er hægt að finna fullt af hollum uppskriftum, sem innihalda ekki hvítt hveiti, ger eða hvítan sykur. Skoða síðuna
. Kornax er með ýmsan fróðleik um bakstur á sinni heimasíðu sem vert er að skoða.  Skoða nánar
. Glæsileg síða: Hjá Jóa Fel. ef þú ert í veisluhugleiðungum. Skoða síðuna
. Mjólkursamsalan er með fjölda bökunar uppskrifta á sinni heimasíðu. Skoða síðuna
. Nokkrar uppskriftir á matavefnum mbl.is. Skoða síðuna
. Bloggsíða með nokkrum uppskriftur af bakstri. Skoða síðuna
. Á vefnum Maður lifandi.is eru margar uppskriftir af hollu bakkelsi. Vert að skoða þessar uppskriftir. Skoða síðuna
. Uppskriftir á Gaman og alvara, bæði brauð og kökur í útvali. Skoða síðuna
. Áttu brauðvél? Hér eru nokkrar uppskriftir fyrir brauðvélar. Skoða síðuna
Aftur upp.
Aftur upp.
-

-

Kex er líka gott.

-

Gott brauð.

-

Skrifa undir þakkir til færeyinga.

Námskeið í netviðskiptum.
TILBOÐ 35% afsláttur.

Maturinn.com er með hýsingu hjá KIOSK.ws

Traust vefhýsing hjá KIOSK.

 

Heim

Senda póst.

 

Síðast uppfært: 12.12.2008

Vefurinn er í stöðugri vinnslu og endurnýjun.


.........
Maturinn.com
Elías Stefánsson
Reykjavík.
Sími: 695 2724
maturinn@maturinn.com