Uppskriftir


Skráðu þig á póstlistann:



|
Uppskriftir.

Botnar - Innihald
200 gr. Súkkulaði 70%
8 stk. Eggjarauður
10 stk. Eggjahvítur
125 gr. Smjör
140 gr. Strásykur
125 gr. Hveiti
Salt á hnífsoddi
Tertubotnar - Aðferð
Smjör og súkkulaði brætt yfir heitu vatnsbaði. Eggjarauður hrærðar vel og súkkulaðinu bætt saman við. Stífþeytið eggjahvíturnar ásamt strásykri og salti. Blandið þriðjungi eggjahvítu-blöndunar varlega saman við súkkulaðihræruna, síðan því sem eftir er. Sigtið hveitið og hrærið varlega smátt og smátt saman við. Smyrjið vel tvö tertuform og bakið í u.þ.b. 45 mín. 180°C heitum ofni.
Krem - Innihald
150 gr. Súkkulaði 70%
2 ½ dl. Rjómi
150 gr. Flórsykur
2 msk. Vanillusykur
1 stk. Egg
10 msk. Apríkósumauk
Krem - Aðferð
Bræðið súkkulaði og rjóma, ásamt flórsykri og vanillusykri saman í potti við vægan hita og hrærið í uns allt er vel bráðið, hitið áfram í ca. 5 mín. Sláið eggið saman og hrærið saman við það 5 msk. af súkkulaðiblöndunni og blandið því síðan saman við alla súkkulaðiblönduna, hrærið vel. Þegar blandan er samfelld er hún tekin til hliðar og látin kólna. Leggið tertubotnana saman með apríkósumauki á milli. Súkkulaðikreminu smurt á tertuna með spaða og látin í kæli í u.þ.b. 4 klst. Tekin fram nokkru áður en hún skal borinn fram. Hafið þeyttan rjóma með kökunni.

Jarðarberjaterta.
4 stk. Eggjahvítur
1 bolli Strásykur
2 bollar Kókosmjöl
100 gr. Suðusúkkulaði
2 1/2 dl. Rjómi
1/1 ds. Jarðarber.
Stífþeytið eggjahvítur og strásykur. Blandið kókosmjöli og brytjuðu súkkulaði varlega saman við. Smyrjið ofnplötu og sáldrið hveiti yfir, þá er deiginu jafnað í tvo botna á plötuna. Bakist í miðjum ofni við 150°C hita í u.þ.b. 30 mínútur. Sigtið vökva frá jarðarberjunum og dreypið yfir botnana. Mörðum jarðarberjum blandað varlega saman við þeyttan rjómann, rjómablöndunni smurt á milli botnana. Skreytt t.d. með ferskum jarðarberjum og súkkulaði.
Marengs með ávöxtum.
8 stk. Eggjahvítur
500 gr. Strásykur
1 ½ tsk. Edik
½ tsk. Vanilludropar
½ tsk. Salt
Krem:
2 d.l Rjómi
3 msk. Flórsykur
½ tsk. Vanilludropar
Ferskir ávextir eftir smekk
Eggjahvítur þeyttar, sykri, ediki og salti bætt saman við ásamt vanilludropum. Þeytt vel þar til marengsinn er orðinn stífur. Smyrjið á smurða ofnplötu og bakið við 100° C í u.þ.b. 2 kls. Slökkvið á ofninum og látið marengsinn kólna í honum. Þeytið rjóma ásamt flórsykri og vanilludropum, smyrjið á marengsbotninn. Raðið t.d. jarðarberjum, vínberjum, bláberjum, kiwi, ananas og öðrum ávöxtum og berjum yfir kökuna.

Svampbotn
4 stk. Egg
175 gr. Strásykur
50 gr. Hveiti
50 gr. Kartöflumjöl
2 tsk. Lyftiduft
Hrærið sykur og egg ljóst og létt. Sigtið saman hveiti, kartöflumjöl og lyftiduft og blandið í smáum skömmtum varlega saman við eggjablönduna. Sett í smurt hringlaga tertuform. Bakið í miðjum ofni við 200°C hita í u.þ.b. 20-30 mín.

Púðursykurmarengs
3 stk. Eggjahvítur
150 gr. Púðursykur
80 gr. Strásykur
Eggjahvítur þeyttar, strásykri og púðursykri bætt saman við og þeytt uns blandan verður að kvoðu. Sett í vel smurt tertuform og bakað við 150°C í u.þ.b. 40 mín.

Kókosbolluterta.
1 stk. Svampbotn
1 stk. Púðursykurmarengs
1 ds. Perur
1 stk. Banani
6 stk. Kókósbollur
½ ltr. Rjómi
50 gr. Suðusúkkulaði
Vætið svampbotn með perusafanum, þeytið rjómann.
Sneiðið bananann og raðið á svampbotninn ásamt sneiddum perum.
U.þ.b. þriðjungi af þeytta rjómanum smurt yfir. Ofan á rjómann er raðað kókosbollum sem hafa verið skornar í tvennt og settur rjómi þar yfir. Marengsbotninn settur ofan á og hulinn með þeyttum rjóma. Súkkulaðið brætt í vatnsbaði og kæl, síðan hellt í mjórri bunu yfir tertuna til skreytingar.

Crispies-karamelluterta.
4 bollar Rise Crispies
4 msk. Sýróp
100 gr. Súkkulaði
100 gr. Súkkulaði fyllt karamellu.
100 gr. Smjörlíki
1 stk. Banani
30 stk. Töggur
1 dl. Rjómi.
Bræðið smjörlíki, sýróp og súkkulaði í potti og hrærið Rice Crispies saman við.
Sett í form og sett í ískáp til kælingar um stund. Þeytið rjóma og blandið stöppuðum banana saman við. Dreifið yfir kökubotninn. Útbúið karmellubráð með því að bræða töggurnar í rjóma, við vægan hita. Kælið karamellubráðina og hellið í mjórri bunu yfir tertuna.

Marengsterta með Daim.
Marengsbotn:
3 stk. Eggjahvítur
2 dl. Strásykur
1 1/2 dl. Möndlur
Stífþeytið eggjahvítur og sykur. Möndlur afhýddar, saxaðar fínt og varlega blandað saman við.
Bakið við 150°C hita í ca. 1 klst.
Daim krem:
150 g. Daim
1 dl. Kaffi
3 stk. Eggjarauður
3/4 dl Strásykur
3 dl. Rjómi
Daim og volgu kaffi blandað saman. Eggjarauður þeyttar vel ásamt sykri. Rjómi þeyttur og öllu blandað varlega saman.
Setjið marengsbotninn í form og setjið daimblöndnua yfir.
Frystið í 4 klukkustundir.
Skreytið að vild þegar hún er tekin úr frysti. Ekki verra að bera hana fram áður en hún þiðnar að fullu.

Sykurlaus Ávaxta-hnetukaka.
150 gr. Heilhveiti
1 tsk. Lyftiduft
½ tsk. Allrahanda
1 tsk. Kanill
60 gr. Smjörvi
½ stk. Epli
2 tsk. Appelsínuhýði
1 stk. Egg
1 dl. Undanrenna
70 gr. Döðlur
50 gr. Valhnetur
Sigtið þurrefnin saman. Rífið eplið og appelsínuhýði gróft og hrærið saman við smjörvann og hluta af þurrefnunum bætt í. Blandið egginu varlega saman við ásamt rest af þurrefnum og undanrennu. Þá eru hnetur og döðlur settar út í deigið. Bakið í smurðu kökuformi við ca. 160° hita í u.þ.b. 1 klst.

Áhugaverðir tenglar

Ýmsar leiðbeiningar varðandi bakstur og fleira úr bókinni:
Bökun í heimahúsum eftir Helgu Sigurðardóttur, á vefnum: Amma gamla á netinu. 14/9
Bakstursleiðbeiningar á brauði, þörf lesning. 
Á CafeSigrún er hægt að finna fullt af hollum uppskriftum, sem innihalda ekki hvítt hveiti, ger eða hvítan sykur. 
Kornax er með ýmsan fróðleik um bakstur á sinni heimasíðu sem vert er að skoða. 
Glæsileg síða: Hjá Jóa Fel. ef þú ert í veisluhugleiðungum. 
Mjólkursamsalan er með fjölda bökunar uppskrifta á sinni heimasíðu. 
Nokkrar uppskriftir á matavefnum mbl.is. 
Bloggsíða með nokkrum uppskriftur af bakstri. 
Á vefnum Maður lifandi.is eru margar uppskriftir af hollu bakkelsi. Vert að skoða þessar uppskriftir. 
Uppskriftir á Gaman og alvara, bæði brauð og kökur í útvali. 
Áttu brauðvél? Hér eru nokkrar uppskriftir fyrir brauðvélar. 
|





|