

Skráðu þig á póstlistann:

|
Uppskriftir


Mojito.
50 ml. Ljóst ROM
8 stk. Myntublöð fersk
3 msk. Hrásykur
1/2 stk. lime ávöxtur
25 ml. Soda vatn
½ dl. Appelsínusafi
Klaki
Myljið saman hrásykur, myntublöð, safa úr 1/2 lime. Mælið Rom og hellið yfir ásamt mulda ísnum. Bætið appelsínusafa í og
fyllt upp með sódavatni. Hrærið vel saman.
Berið fram skreytt með myntulaufum og sogröri.

Tequila sunrise.
3 - 6 cl.Tequila
Ferskur appelsínusafi
Grenadine
Appelsínusneið
Kokteilber
Fyllið hátt glas til hálfs með klaka , hellið 3-6 cl. af tequila yfir klakana og fyllið upp með appelsínusafa og hellið skvettu af grenadine út í. Setjið rauf í hálfa appelsínusneið og tyllið á barminn á glasinu, sama gert við kokteilberið.
Berið fram með hræru.
3 cl. vodka
1 1/2 cl. kahlua
Klaki settur í glas og 3 cl. vodka hellt yfir síðan 1 1/2 cl. kahlua kaffilíkjör bætt við, hrært með kokteilpinna. Skreytt með kokteilberi.
Jarðarberjakrapi.
10 stk. Ísmolar
10 stk. Frosin eða fersk jarðarber
1/2atk. Banani
Appelsínusafi.
Öllu blandað í mixara og mulið þar til klakinn verður að krapi.
Hellt í hátt glas með röri og skreytt með jarðarberi eða spiral af appelsínuberki.
Orkudrykkur með berjum.
5 dl. Haframjólk
2 dl. Fersk ber
1/2 tsk. Engifer, rifin
Límónusafi smá skvetta
Allt sett saman í matvinnsluvél og maukað.
Setjið klaka í glös og hellið drykknum yfir.
Skreytt með límónuhýði og/eða berjum ef vill.

Svalandi Epladrykkur.
1/2 l. eplasafi
3/4 l. sódavatn
1 stk. sítróna
Sítrónan skorin í tvennt, annar hlutinn skorinn í sneiðar.
Úr hinum helmingnum kreistur safinn út í sódavatnið.
Blandið í könnu með ís, hrærið.

Sex on the beach.
4 hlutar (4cl.) Vodka
1 partur (2cl.) Ferskju snaps
2 hlutar (4cl.) Appelsínusafi
2 hlutar (4cl.) Cranberry safi
Sprite
Grenadine syrop
Appelsínusneið
Öllu hellt yfir klaka í háu glasi, fyllt upp með sprite og hrært örlítið. Smá skvettur af Grenadine hellt í ekki hræra. Skreytt með sneið af appelsínu.

Áhugaverðir tenglar

Kaffitár.is er með nokkrar uppskriftir af kaffidrykkjum og fróðleik. 19/9
Þeir sem hafa áhuga á vínum verða að líta inn á VÍN.IS. 
Vefur Mjólkursamsölunnar, fullur af fróðleik. 
Kaffitár - leggur heiminn að vörum þér. Allt um kaffi. 
Vinbudin.is er vefur ÁTVR, haugur af fróðleik. 
Matseld.is geymir margar uppskriftir af fjölbreyttum drykkjum. 
|




|