-

................................... ... ... ... ..PPEftirréttir..... -

Heim

Fiskur

Fuglar

Kjöt

Grill

Grænmeti

Ávextir

Súpur

Pasta

Bakstur

Drykkir

Tilboðin

Tenglar

-

Uppskriftir

. Appelsínu og jarðarberjasalat.
.
Grillaðir bananar.
.
Rabarbaragrautur.
.
Möndlugrautur.
.
Daim ís.
.
Ísterta Irish Mist.
.
Toblerone ís.
.
Marengs með ávöxtum.
.
Rjómarönd.
. Bananaís mjög einfaldur.
-
. Aðalréttir
. Forréttir
. Eftirréttir
. Skyndiréttir
. Smáréttir
. Meðlæti
. Pasta
. Grænmeti
. Ávextir
. Súpur/ sósur
. Drykkir
. Krydd
. Fróðleikur

-
Skráðu þig á póstlistann:
Þitt netfang Fornafn

 

Uppskriftir
-


Appelsínu og jarðarberjasalat.

Appelsínu og jarðarberjasalat.

Ákaflega fallegur og frísklegur eftirréttur með nýjum ávöxtum sem hentar vel á eftir góðum grillrétti, á heitum sumardegi.
Innihald
½ bolli Strásykur
¼  bolli Basilikulauf söxuð
8 -10 stk. Jarðarber
4 stk. Appelsínur
1½ bolli Vatn
Aðferð
Sjóðið vatnið, bætið sykri í og sjóðið þar til vökvinn verður tær, bætið fínt söxuðum basilikulaufum út í, kælið. Hreinsið og skerið jarðarberin í báta. Skerið börkinn af appelsínunum, hafið skál undir svo safinn tapist ekki, fjarlægið allt hvíta lagið. Skerið aldinkjötið í báta, skerið á milli himnulaga þannig að hún verði sem minnst. Setjið til skiptis appelsínu og jarðarberjabáta í fallega skál eða glas með víðu opi, blandið appelsínusafanum saman við sykurlögin og hellið yfir ávextina. Kælið í u.þ.b. hálfa til eina klukkustund, athugið að berin verða lin og ólystug ef þau bíða of lengi.
Aftur upp
Aftur upp
-

 


Grillaðir bananar.

Grillaðir bananar.

Auðvelt og fljótlegt er að grilla banana. Þeir verða sætir og ljúfengir enda eru þeir vinsælir sem eftirréttur. Upplagt er að setja þá á grillið á meðan borðaður er aðlrétturinn.

Innihald
4 stk. Bananar
Karamellu eða Súkkulaðisósa.
Aðferð
Setjið banana í hýðinu á meðalheitt grillið, eldið í 8 - 10 mín. og snúið af og til. Þegar hýðið er farið að dökkna og bananinn gefur vel eftir þegar hann er kreistur léttilega með grilltöng, þá er hann eldaður.
Fjarlægt bananahýðið, setjið hann í skál og hellið karamellu eða súkkulaðisósu yfir. Ekki skemmir að bera ís eða rjóma með réttinum.
 
Aftur upp
Aftur upp
-


Girnilegur Rabarbaragrautur.

Rabarbaragrautur.

Sjálfsagt er að nýta Rabarbara sem vex í flestum görðum á Íslandi meira. Rabarbaragrautur er sígildur og góður eftirréttur hvort sem er heitur eða kaldur. Fljótlegt og auðvelt er að útbúa grautinn og hann geymist vel í kæli.
Innihald
500 gr. Rabarbari
½ ltr. Vatn
100 gr. Strásykur
6 msk. Maizenamjöl
1 dl. Vatn
Aðferð
Rabarbarinn er þveginn og skorinn í 1-2 sm bita. Látinn í ½ ltr. af sjóðandi vatni og sjóðið í u.þ.b. 5 mín. merjið þá rabarbarann og síið frá vökvanum. Sjóðið vökvann áfram ásamt sykri. Maizenamjöl er hrært í 1 dl. af köldu vatni, hrærið jafningnum í  grautinn, látið suðuna koma aftur upp í 2-3 mín. hrærið allan tímann. Grautinn borinn fram ýmist heitur eða kaldur, með rjómablandi eða þeyttum rjóma. Ef grauturinn á að standa einhverja stund t.d. til að kólna, þá er gott ráð að strá sykri yfir hann svo ekki myndist skán á yfirborðinu.

 

Aftur upp
Aftur upp
-
Möndlugrautur.

Auðveldur Möndlugrautur.
Ris a L'amande

1 bolli Hrísgrjón
2 bollar Mjólk
½  bolli Möndlur
Strásykur eftir smekk
Vanilludropar eftir smekk
Salt eftir smekk
¼ l. Rjómi
1 tsk. Smjör
Hrísgrjónin skoluð undir köldu vatni þar til vatnið er þokkalega tært.  Sjóðið hrísgrjónin í lokuðum potti í 5 mín. slökkvið þá undir pottinum og látið standa á hellunni í u.þ.b. 20 mín. Bætið mjólk saman við grjónin og sjóðið við vægan hita í ca 45 mín. eða þar til grjónin eru orðin vel mjúk. Þá er söxuðum möndlunum bætt út í og bragðbætt með smjöri, vanilludropum, salti og sykri eftir smekk. Grauturinn kældur. Þeytið rjóma og hrærið varlega saman við grautinn. Gott að hafa kirsuberja eða hindberjasósu með.
Sósur með möndlugrautnum, smelltu á örina. Sósur með möndlugrautnum.
Aftur upp
Aftur upp
-

Daim ís í skál.

 

Daim ís.

2  stk. Eggjarauður
2  stk. Egg (rauða og hvíta)
125 gr. Strásykur
½ ltr. Rjómi
200 gr.  Daim kúlur
Þeytið vel eggjarauður, egg og sykur. Blandið þeyttum rjómanum varlega saman við . Daim kúlurnar mulda og bætt varlega út í. Setjið í mót eða skál og frystið í 12 tíma. Berið fram skreytt með t.d. Daim kúlum, súkkulaði og ávöxtum.

 

Aftur upp
Aftur upp.

-

 

Ísterta Irish Mist.
(6 manna.)

½ ltr. Rjómi                                       
4stk. Egg                                          
¾ bolli Strásykur                                
50 gr. Súkkulaði  gróft saxað        
200 gr. Makkarónukökur                       
½ dl. Irish Mist líkjör.
Rjómi þeyttur og kældur. Eggin þeytt ásamt sykri, blandið varlega saman við rjómann. Makkarónukökur muldar, helmingi þeirra stráð á botn kökuforms. Bætið gróft muldu súkkulaði og Írish Mist líkjörnum varlega saman við rjómann, dreifið helmingi af rjómablöndunni yfir kökurnar, þá rest af makkarónukökunum og að síðustu því sem eftir er af rjómablöndunni.
Sléttið yfirborðið með spaða og frystið í 12 tíma.
Skreytið að vild t.d. með ferskum ávöxtum og súkkulaði.
Aftur upp
Aftur upp.

-

Toblerone ís.

Toblerone ís.

Innihald
5 eggjarauður
5 msk. sykur
150 g Toblerone, brætt
5 dl rjómi, þeyttur
100 g Toblerone, fínsaxað
Toblerone-ís
Aðferð
Þeytið eggjarauður og sykur saman í hrærivél í 3-4 mínútur eða þar til blandan er orðin létt og ljós.
Bræðið 150 g af Tobleronesúkkulaði yfir vatnsbaði,
kælið það lítillega og hellið því síðan út í eggjablönduna í mjórri bunu.
Blandið vel saman. Hrærið rjómann að lokum varlega saman við með sleif.
Hellið blöndunni í fallegt mót og skreytið með söxuðu Toblerone.
Frystið í a.m.k. 4 klst.

Aftur upp
Aftur upp.

-

 

Marengs með ávöxtum.

8 stk. Eggjahvítur
500 gr. Strásykur
1 ½ tsk. Edik
½ tsk. Vanilludropar
½ tsk. Salt
Krem:
2 d.l Rjómi
3 msk. Flórsykur
½ tsk. Vanilludropar
Ferskir ávextir eftir smekk
Eggjahvítur þeyttar, sykri, ediki og salti bætt saman við ásamt vanilludropum.  Þeytt vel þar til marengsinn er orðinn stífur. Smyrjið á smurða  ofnplötu  og bakið við 100° C í u.þ.b. 2 kls. Slökkvið á ofninum og látið marengsinn kólna í honum. Þeytið rjóma ásamt flórsykri og vanilludropum, smyrjið á marengsbotninn. Raðið t.d. jarðarberjum, vínberjum, bláberjum, kiwi, ananas og öðrum ávöxtum og berjum yfir kökuna.
Aftur upp
Aftur upp.

-

 

Rjómarönd.

½ ltr. Rjómi
2 stk. Eggjarauður
2 stk. Egg
70 g. Strásykur
5-6 blöð Matarlím                           
½ ds. Jarðarber                        
150-200gr. Súkkulaði, rifið                          
Setjið matarlím í bleyti í köldu vatni í ca. 10 mín. Þeytið rjóma,varist að hafa hann of stífan. Við vægan hita er ávaxtavökvinn soðinn niður uns hann mælist u.þ.b. 1dl. bætið sykrinum í vökvann. Egg og eggjarauður stífþeytt í volgri hrærivélarskál, 2 msk. af heitum vökvanum bætt út í og hrært áfram. Vatnið kreist úr matarlíminu og sett í fremur heitan vökvann. Eggjablanda og rjómi hrærð varlega saman með sleikju, matarlím hrært saman við og ávöxtir ásamt rifnu súkkulaðinu. Sett í skál og kælt. Nota má aðra ávexti en jarðarber.
Aftur upp
Aftur upp.

-

 

Bananaís mjög einfaldur.

Bananar
Suðusúkkulaði
Lakkrískurl, hrískurl, kókosmjöl, smartieskurl, o.s.frv…
Magn fer allt eftir smekk  hvers og eins.
Bananar afhýddir og skornir í 3 bita og þræddir á t.d. grillpinna.
Frystir í ca. 10 – 15 mín. Bræðið súkkulaðið  í vatnsbaði og dýfið köldum bananabitunum í súkkulaðið.
Veltið upp úr lakkrískurli, krömdum hrís, möndlum, kókos eða hverju því sem þykir gott. Frystið aftur.
Þetta er getur verið gott að eiga í frysti handa gestum af yngri kynslóðinni.
Aftur upp
Aftur upp.

-

 

-
-

Rabarbara compot.

-

 

 

 

 

-

Kátur með klaka með ávaxtabragði, er það ekki eftirréttur?

-

 

Til baka

 

Síðast uppfært: 14.10.2009

Vefurinn er í stöðugri vinnslu og endurnýjun.


Maturinn.com er með hýsingu hjá KIOSK.ws
 
Maturinn.com
Elías Stefánsson
Reykjavík.
Sími: 695 2724
maturinn@internet.is