Uppskriftir


Skráðu þig á póstlistann:
|

Graflax.
1 stk. Laxaflak
60 gr. Salt
15 gr. Dillfræ
25 gr. Strásykur
2 gr. Fennikel
2 gr. Pipar
Laxaflakið snyrt og beinhreinsað. Saxið ferskt dill, myljið þurrkað fennikel og blandið við sykri og salti. Nuddið blöndunni á báðar hliðar flaksins og geymið undir léttu fargi í kæli í u.þ.b. 24 klst.

Gratineraður humar.
Forréttur fyrir: 4.
24 stk. Humar í skél, frekar stórir halar skornir eftir endilöngu og görnin fjarlægð.
300 gr. Hvítt brauð
8 stk. Hvítlauksrif, söxuð fínt.
2-4 msk. Steinselja söxuð smátt.
200 gr. Brætt smjör.
Salt og pipar.
Humar raðað ofnskúffu, fiskurinn upp.
Brauð, hvítlaukur og steinselja sett í matvinnsluvél og saxað saman, kryddað að smekk. Blöndunni jafnað í þéttu lagi yfir humarinn í ofnskúffuni.
Bræddu smjörinu dreypt yfir blönduna.
Bakið í ofni við háan yfirhita í nokkrar mínútur. Þar til brauðið hefur fengið gullin lit.
Borið fram með léttristuðu brauði.

Áhugaverðir tenglar

Fjöldi uppskrifta af forréttum á vefuppskriftir.com 30/7
Matseld.is er skemmtilegur vefur með fjölda uppskrifta 30/7

|




|