
Skráðu þig á póstlistann:


|
Uppskriftir


Kjúklingabringur með Pesto.
Matseld getur ekki orðið auðveldari né fljótlegri en þessi kjúklingaréttur. Pesto og sýrópbragðið tóna vel saman, vinsæll réttur hjá unga fólkinu.
Innihald
4 stk Kjúklingabringur
190 gr. Pesto, grænt
190 gr. Maple sýróp
1 dl. Ostur rifinn
1 msk. Steinselja söxuð
Olía
Aðferð
Eldfast form smurt vel með olíu, kjúklingabringur lagðar þar í. Blandið saman pestói og sýrópi og dreifið yfir bringurnar. Setjið í 175°C heitan ofn og bakið í 25-30 mín. stráið rifnum osti yfir bakið áfram þar til osturinn er vel bráðinn. Stráið gróft saxaðri steinselju yfir og berið fram með t.d. gljáðum gulrótum, kartöflum og salati.
Kjúklinga Quesadilla
Skemmtilega auðveldur og góður smáréttur sem bragð er að. Tilvalinn þegar nýta þarf afganga af kjúklingi.
Innihald
1stk. Tortilla stór
1 bolli Kjúklingakjöt soðið
1oo gr. Ostur
3 msk.Rjómaostur
½ stk. Vorlauk
2 msk. Chillimauk
½ tsk. Taco krydd
1 msk. Steinselja
Salt og svartur pipar
Aðferð
Kjúklingurinn saxaður gróft. Fínsaxið steinselju og vorlauk, hrærið saman við rjómaostinn. Bragðbætið með salti og tacokryddi. Smyrjið ostahrærunni yfir Tortilla kökuna. Á helming kökunnar er stráð helmingi af rifna ostinum, síðan kjúklingabitum ásamt Chillimauki, að lokum rest af osti. Brjótið kökuna saman, hitið pönnu vel, smyrjið með olíu og bakið kökuna þar til hún verður gullinbrún, snúið við og brúnið seinni hliðina á sama hátt.

Kjúklingabringur með ostfyllingu.
8 stk. Kjúklingabringur
150 gr. Mexíkóostur
8 sneiðar Skinka
Salt og pipar
Bringurnar þerraðar og skornir vasar í þær. Ostur skorinn í stilka,
skinkusneiðum vafið utan um ostinn og þeim stingið í vasana,
lokið fyrir með tannstönglum. Kryddið með salti og pipar.
Steikið á pönnu u.þ.b. 5 mín. á hvorri hlið, eða þar til kjötsafinn er glær.
Berið fram með ofnsteiktum kartöflum og góðu salati.

Grillaðar kjúklingabringur.
4 stk. Kjúklingabringur
3-4 msk. Olífuolía
2–3 stk. Limeávöxtur
1 msk. Basilíka,
1 msk. Estragon,
1 msk. Timjan,
1 msk. Mynta
1 msk. Steinselja
1 stk. Hvítlauksgeiri
Salt og pipar.
Safinn kreistur úr limeávöxtunum og settur í matvinnsluvél ásamt olíu og
ferskum kryddjurtum, hvítlauk og nýmöluðum pipar. Saxið uns verður að
samfelldu mauki, nuddið maukinu á báðar hliðar á kjúklingabringum og leggið
á fat og látið standa í kæli í u.þ.b. 2 klst.
Grillið á vel heitu grilli í ca. 4-5 mín. á hvorri hlið.
Pennslið með kryddblöndunni meðan á grillun stendur og saltið að lokum.
Kjúklingabringur í ofni.
4 stk. Kjúklingabringur
4 matsk. Extra Virgin Olivuolía
2 stk. Gulrætur
1 stk. Laukur
1 tsk. Strásykur
Safi úr 3 appelsínum
Safi úr 1 sítrónu
1/2 bolli hvítvín
Salt og pipar
Skinnlausar bringurnar kryddaðar með salti og pipar, síðan steiktar í olíunni fallega brúnar. Setjið í smurt eldfast fat og haldið heitum. Sneiðið gulrætur og lauk steikið mjúkt, þá er appelínusafa, sítrónusafa og hvítvíni bætt á pönnuna, myndið góða sósu, hún síðan maukuð í blandara, saltið og piprið. Hellið yfir kjúklingabringurnar og eldið í ofni við 200°C hita í u.þ.b. 25 mínútur. Skreytið með appelsínu og sítrónusneiðum. Gott að hafa hrísgrjón og brauð með.

Kjúklingaborgari.
2 stk. Hamborgarabrauð gróft
1 stk. Kjúklingabringa
1 blað Kínakál eða Jöklasalat
3 - 4 sneiðar Ostur
2 msk. sýrður 5%
2 tsk. Tómatsósa
1 tsk. Sinnep sætt
1 dl. Chilli sósa
½ dl. Olía
Setjið chillisósu í skál ásamt olíu. Kjúklingabringan skorin þversum í tvennt, bönkuð létt undir plastfilmu til að jafna þykktina, sett í sósuna. Brauðið skorið og létt ristið á pönnu, Sýrða rjómanum, tómatsósu og sinnepi hrært saman og því smurt á brauðhelmingana. Kálblaðið rifið og sett á neðri brauðhelminginn. Bringusneiðarnar steiktar á snarpheitri pönnu þar þær eru að mestu hvítar þá er þeim snúið og steiktar áfram þar til kjötið er sýnilega allt hvítt. Beriðt fram með frönskum kartöflum og salati ef vill.
Austurlenskar kjúklingabringur.
4 stk. kjúklingabringur
1 dós coconut milk
1 glas Hoi Sin sauce
1 glas Saty sauce,
2 stk. gulrætur
½ paprika rauð
½ paprika græn
6 – 8 stk. sveppir
Bringurnar skornar í strimla, og steiktar snöggt á pönnu settar í smurt eldfast fat.
Grænmetið skorið fínt og dreift yfir bringurnar. Coconut milk, Hoi Sin og Saty sauce blandað saman og hellt yfir allt.
Steikt í ofni í u.þ.b. 25min. Gott brauð og hrísgrjón haft með.
Grillaður kjúklingur.
500 gr. Kjúklingabringur
150 gr. Sveppir
2 stk. Kúrbítar
2 stk. Paprikur, rauðar
½ dl. Teriyaki sósa
½ dl. Appelsínusafi
½ tsk. Rauðar piparfögur
Blandið í skál appelsínusafa, Teriyaki sósu og muldum piparflögur. Penslið kjúklingabringur og grænmeti með kryddleginum.
Þerrið skinnlausar kjúklingabringurnar og grillið í ca 20-25 mín. snúið þeim og penslið með kryddleginum af og til. Grillið paprikur, kúrbít og sveppi í 5 - 6 mín. snúið og pennslið með kryddleginum. Gott að hafa hrísgrjón og gott brauð með.

Áhugaverðir tenglar

Uppskriftabæklingur sem hægt er að hlaða niður á: holta.is 4/9
Heimilismatur.blogcentral.is síðan geymir nokkrar uppskriftir
með kjúklingi 28/7
Kjúklingur og kalkúnn er ekki bara góð og holl fæða, heldur matvæli sem gaman er að gera eitthvað nýtt og spennandi með.
Góðar uppskriftir á síðu Ísfugls. 
Kalkúnn er ekki flókinn í matreiðslu. Með upplýsingum og uppskriftum á vefnum KALKUNN.IS er það leikur einn. 
Margar og glæsilegar uppskriftir á Matseld.is 
Nokkrar kjúklinga uppskriftir á femin.is. 
Nokkrar kjúklinga uppskriftir á heimilismatur.blogcentral.is 
Meira með kjúklingi frá heimilismatur.blogcentral.is 
|




|