
Skráðu þig á póstlistann:

 |
Uppskriftir


Ofnbakaðar sætar kartöflur
Þessar sætu kartöflur eru frábært meðlæti með góðri steik. Í þessari uppskrift er best að ummálið sé sem jafnast á kartöflunum.
Innihald
2 stk. Sætar kartöflur
3-4 msk. Olívuolía
1 tsk. Rósmarin mulið
½ tsk. Chili pipar
¼ tsk. Cayanne pipar
½ tsk. Svartur Pipar
1 tsk. Salt
Aðferð
Afhýðið kartöflurnar og skerið í jafnar sneiðar u.þ.b. 2 sm. þykkar, setjið í skál og veltið upp úr olíu. Nuddið kryddinu vel á kartöflusneiðarnar. Setjið álpappír á ofnplötu og smyrjið vel með olíu, raðið kartöflusneiðunum í á plötuna í einföldu lagi og hyljið með álpappír, setjið í kaldann ofn og stillið hann á 200° C. Eftir ca. 30 mínútur er álpappírinn tekin af og kartöflurnar bakaðar áfram í u.þ.b. 10 mín. þá ættu kartöflurnar að hafa fengið gullinn lit, snúið þeim varlega og bakið í 10 – 15 mínútur.

Ofnbakað blómkál er frábært meðlæti með öðrum mat en getur hæglega verið léttur hádegisverður með góðu brauði.
Innihald
1 stk. Blómkálshöfuð stórt
3 msk. Smjör
3 msk. Hveiti
4 dl. Soð af blómkálinu
4 dl. Matreiðslurjómi
1 tsk. Múskat
200 gr. Rjómaostur
200 gr. Rifinn ostur
1/4 stk. Paprika
Hvítur pipar
Salt
Aðferð
Blómkálið skolað og hlutað niður í greinar, setjið í léttsaltað vatn og sjóðið í u.þ.b. 5 mínútur. Þegar kálið er soðið er það tekið upp og látið renna af því, geymið 4 dl. af soðin. Búið smjörbollu með því að bræða smjörið í potti og hræra hveitinu saman við, þynnið bolluna smátt og smátt með soðinu, látið sjóða í 3-5 mín. Bætið rjómaostinum út í og látið bráðna, þá er matreiðslurjómanum bætt saman við og suða látin koma upp. Kryddið með grænmetis-krafti, nýrifnu múskati, salti og hvítum pipar eftir smekk. Takið af hitanum og bætið helmingi af rifna ostinum saman við. Blómkálið sett í smurt ofnfast fat, sósunni hellt yfir kálið. Skerið paprikuna og stráið yfir réttinn (aðalega til skrauts) ásamt rifna ostinum sem eftir er. Setjið fatið í ca. 230°C heitan ofn þar til osturinn hefur bráðnað og fengið gullinn lit.
Einstaklega léttur og góður réttur með brauði eða sem meðlæti með öðrum mat.

Grillaðir tómatar eru góðir sem meðlæti með mat, fljótlegra og auðveldara getur meðlætið ekki orðið. Hér eru tómatarnir fylltir með ljúfengum ostum.
Innihald
4 stk. Tómatar
1/3 stk. Camenbert ostur
3 msk. Rjómaostur
2 msk. Ólífuolía
Aðferð
Látið osta standa við stofuhita til að mýkjast. Skolið tómatana og skerið sneið ofan af toppnum. Fjarlægið u.þ.b. helming af tómatkjötinu. Skeri frá hvítu húðina af Camenbertostinum, því sem eftir stendur er stappað eða hrært saman við rjómaostinn með gaffli og fyllið í tómatana, u.þ.b. sléttfulla. Penslið tómatana með ólífuolíu og setjið á vel heitt grillið, gjarnan á álbakka, í 8-12 mín. eða þar til osturinn er vel bráðinn.

Shopska salat.
Þeir sem hafa ferðast til Búlgaríu og nágrannaríkja kannast við þetta frábæra salat, þar sem flestir veitingastaðir hafa það á boðstólum. Auðvelt og gott með flestum mat.
Innihald
4 stk. Vorlaukar
4 stk. Tómatar
½ stk. Agúrka
2 stk. Paprikur rauðar
1 dl. Steinselja söxuð
1 glas Feta ostur
3 - 4 msk. Olía af ostinum
Salt og svartur pipar
Aðferð
Saxið grænmetið frekar smátt ásamt steinselju. Kryddið með salti og ný möluðum svörtum pipar. Og blandið saman, dreifið olíu yfir. Saxið eða myljið Feta ostinn og stráið yfir grænmetið.

Frískt salat sem tekur skamma stund að útbúa. Á vel við grillað kjöt. Ekki skemmir hollustan fyrir.
Innihald
4 stk. Græn epli
1/2 stk Sellerírót
1 ds. Jógúrt hrein
Salt
Cayennepipar (Eldpipar)
Aðferð
Sellerírót og epli afhýdd og rifin eða söxuð frekar gróft. Hrærið saman við jógúrtina og kryddið að vild með salti og Cayennepipar. Kælið áður en borið er fram.

Grillaðir kartöflubátar.
500 gr. Kartöflur
4 msk. Ólífuolía
1 tsk. Rosmarin
1 tsk. Oregano
Salt og pipar
Aðferð
Þvoið og þerrið kartöflurnar og skerið í báta. Steytið kryddið í mortel og blandið í skál ásamt olíu, veltið kartöflubátunum upp úr blöndunni. Raðið á álbakka eða filmu og steikið við góðan hita þar til þeir eru mjúkir í gegn. Tími fer eftir hita á grillinu og þykkt bátanna.
Innihald
200 gr. Mozzarellaostur
400 gr. Tómatar
3-4 greinar Basilíka
8-10 stk. Svartar ólífur
3 msk. Ólífuolía
Salt og svartur pipar.
Aðferð
Mozzarellaostur og tómatar skornir í frekar þunnar sneiðar. Raðað til skiptis á fat ásamt basiíku og kryddað með salti og nýmuldum svörtum pipar, olíu dreipt yfir. Borið fram með góðu brauði eða sem meðlæti.

Ratatouille.
1 stk. Eggaldin
1 stk. Kúrbít
1 stk. Laukur
1 stk. Paprika rauð
4 stk Hvítlauksrif
1 ds . Tómatar
2 dl. Tómatsafi
1 msk. Tómatpurré
1 dl. Ólífuolía
1 msk. Smjör
1 msk Steinselja
Salt og pipar
Skerið eggeldin, kúrbít, papriku og lauk í bita þó ekki of smátt. Steikið í heitri olíu á pönnu. Tómatarnir skornir gróft og bætt á pönnuna ásamt tómatsafa, tómatpurre og pressuðum hvítlauknum, látið malla í 3-5 mín. Kryddið með salti, svörtum pipar og fínt skorinni steinselju.

Sveppir fylltir gráðosti.
20 Sveppir
100 gr. Gráðostur
1 dl. Rjómi
Burstið sveppi og fjarlægið leggina. Hrærið gráðostinn mjúkann með rjómanum og setjið í sveppina og bakið í ofni við 200°C í 5 – 6 mín.
Kartöflustappa (mús)
1 kg. Kartöflur
50 gr. Smjörlíki
3 dl. Mjólk
2 msk. Strásykur
Salt og pipar eftir smekk
Kartöflur soðnar og maukaðar vel með kartöflujárni.
Öllu hrært saman við, varist að sé hrært og mikið getur stappan orðið seig.

Ristaðar kartöflur.
4-5 stk. Bökunarkartöflur
1 dl. Matarolía
Salt og pipar
Rífið kartöflurnar með grófu rifjárni og setjið með matskeið á pönnu, fletjið aðeins og steikið gullin brúnar í vel heitri olíu. Kryddið heitar kartöflurnar.
Áhugaverðir tenglar

Fróðleikur um sveppi og sveppatínslu á vefnum: náttúran.is 29/8
Íslenskt.is er vefsvæði sem fjallar um íslenskt grænmeti í heild sinni. Girnilegar uppskriftir skipa stóran sess á síðunni.
Grænihlekkurinn.is er með netverslunina LÍFRÆNT Á NETINU. Valkost fyrir neytendur sem vilja fá lífrænar afurðir beint frá framleiðendum. Fólki gefst kostur á að panta vikulega, eða sjaldnar eftir eigin óskum, samkvæmt vörulista hverju sinni. 
Heilsubankinn er með margar girnilegar uppskriftir af grænmetisréttum 
Margir girnilegir grænmetisréttir á síðunni Dansrækt JSB. 
|









|