
Áhugaverðir tenglar.
Skráðu þig á póstlistann:

|
Uppskriftir


Grillaðir kjúklingapinnar.
Einstaklega góðir kjúklingapinnar. Henta vel við flest tækifæri, hvert sem tilefnið er. Unga fólkið eru sólgið í þá.
Innihald.
500 gr. Kjúklingabringur
4-5 stk. Hvítlauksrif
1 dl. Olía
6 msk. Teriyaki-sósa
4 msk. Soy sósa
1 tsk. Kjúklingakrydd
Svartur pipar
Salt
Aðferð.
Leggið grillpinna í vatn og látið standa í nokkurn tíma.
Útbúið mareneringu með því að setja góða olíu í skál ásamt pressuðum hvítlauk, teriyakisósu, soy sósu ásamt nýmuldum svörtum pipar. Skerið kjúklingabringurnar í 2-3 lengjur, eftir því hve stórar þær eru og leggið í mareneringuna. Látið marenerast í u.þ.b. 2 klukkustundir. Þá eru þær þræddar upp á grillpinnana. Pinnarnir steiktir á vel heitu grillinu eða grillpönnu í 5-8 mín. á hvorri hlið. Saltið að steikingu lokinni. Gott að kreista kjötbita til að kanna hvort kjötsafinn sé tær og fuglinn full eldaður. Berið fram með góðri sósu.

Kjötbollur grillaðar á teini.
Ekki þarf alltaf dýrar steikur til að slá upp girnilegri grillveislu. Börnum finnst spennandi að fá hakkbollur á teini. Einfalt og fljótlegt, án mikils kostnaðar.
Innihald
500 gr. Nautahakk
3 msk. Brauðmylsna
1 stk. Egg
3 msk. Graslaukur saxaður
Salt og pipar
1 stk. Rauð paprika
1 stk. Græn paprika
½ fl. Hunt´s BBQ sósa
Aðferð
Hrærið eggi, brauðmylsnu og graslauk saman við kjöthakkið, kryddið með salti og pipar og látið standa um stund. Skerið paprikurnar í frekar stóra bita, mótið littlar bollur úr kjöthakkinu. Þræðið á grillteina, til skiptis paprikubitum og bollum, pennslið með BBQ sósu. Ef notaðir eru grillteinar úr tré, þá er nauðsynlegt að þeir liggi í vatni í 15 mín. hið minnsta svo þeir brenni ekki. Setjið á vel heitt grillið, tíminn sem eldun tekur fer eftir stærð á kjötbollunum og hita á grillinu, áætla má 8-10 mínútur. Snúið oft og pennslið með BBQ sósu af og til. Berið fram með t.d. soðnum hrísgrjónum og góðri grillsósu.

Lúða grilluð á teini.
Grillaður fiskur er létt og lystug máltíð. Grænmeti með fiskinum getur verið nánast hvað sem er. Lúða er stinnur fiskur góð til að grilla á teini ef hún er ný, en hafi hún verið fryst vill hún losna af teinunum, þá er betra að nota grillklemmu eða álbakka.
Innihald
500 gr. Lúða
1 stk Rauð paprika
1 stk. Gul paprika
1 stk. Laukur
½ stk. Kúrbítur
Kryddlögur
1½ dl. Ólífuolía
½ stk. Sítróna
1 msk. Dill saxað
½ búnt Steinselja
1 msk. Grænmetiskraftur
½ stk Laukur
Aðferð
Safi kreistur úr sítrónunni, blandað í olíuna ásamt fínt söxuðum lauk, steinselju og dilli. Grænmetiskraftur hrærður saman við. Roðflettið lúðuna og skerið í hæfilega bita og marinerið í kryddleginum í 1 – 2 klst.
Paprikur, laukur og kúrbítur skorin í nokkuð stóra bita og þræðið ásamt fiskinum til skipti á grilltein, byrjið og endið á papriku. Grillið á vel heitu grilli í u.þ.b. 3 mín. á hvorri hlið. Berið fram með salati og kaldri sósu.

Grillaðar Laxasneiðar.
Þetta er bæði fljótleg og góð aðferð til að grilla lax, fiskurinn verður mjúkur og safaríkur í gufunni.
Innihald
4 stk. Laxasneiðar
1 msk. Dill
2 msk. Smjör
Salt og svartur pipar
Aðferð
Laxasneiðar penslaðar með bræddu smjöri og brúnaðar á vel heitu grillinu, færið síðan á álpappír. Dill steytt í morteli ásamt pipar og salti, því síðan stráð yfir fiskinn. Pakkið fiskinum inn í álpapírinn og honum lokað. Eldið áfram við lægri hita eða fjær hitanum í ca. 8 mín. Berið fram með t.d. soðnum kartöflum, sítrónubátum og kaldri kryddsósu.

Hrefnukjöt er frábært á grillið ef maður varast að elda það of
mikið. Þessi aðferð er afar einföld, fljótleg og hefur reynst byrjendum vel.
Innihald
800 gr. Hrefnukjöt
1 dl. Teriyaki sósa
3 stk. Hvítlauksrif
1 tsk. Engiferrót rifin
Salt og svartur pipar
Aðferð
Merjið hvítlauksrifin og blandið ásamt engifernum í Teriyaki sósuna og setjið í flatbotna skál eða fat. Skerið kjötið í sneiðar u.þ.b. 1½ cm. þykkar og látið marinerast í kæli yfir nótt, jafnvel lengur. Veltið sneiðunum í marineringunni eða penslið kjötið annað slagið svo allt marinerist vel. Steikið á funheitu grillinu í ca. 1 – 1½ mínútu á hvorri hlið, kryddið með saltið og nýmuldum svörtum pipar. Berið fram með góðri grillsósu, soðnum kartöflum og grænmeti.

Grillaðar kjúklingabringur.
4 stk. Kjúklingabringur
3-4 msk. Olífuolía
2–3 stk. Limeávöxtur
1 msk. Basilíka,
1 msk. Estragon,
1 msk. Timjan,
1 msk. Mynta
1 msk. Steinselja
1 stk. Hvítlauksgeiri
Salt og pipar.
Safinn kreistur úr limeávöxtunum og settur í matvinnsluvél ásamt olíu og
ferskum kryddjurtum, hvítlauk og nýmöluðum pipar. Saxið uns verður að
samfelldu mauki, nuddið maukinu á báðar hliðar á kjúklingabringum og leggið
á fat og látið standa í kæli í u.þ.b. 2 klst.
Grillið á vel heitu grilli í ca. 4-5 mín. á hvorri hlið.
Pennslið með kryddblöndunni meðan á grillun stendur og saltið að lokum.

Grillaðir humarhalar með steinseljupestó og lime
1 stórt steinseljubúnt
2 dl ólífuolíu
1 stórt hvítlauksrif
½ - 1 tsk salt
4 – 6 lime
1 kg humarhalar í skel
Setjið steinseljublöð án stilka í matvinnsluvél.
Hellið olíu yfir á meðan vélin vinnur.
Setjið hvítlauk og salt saman við. Hrærið þar til olían verður að grænu mauki. Klippið langsum eftir skelinni á hverjum humarhala. Skiptið steinseljupestóinu jafnt á milli humarhalanna. Grillið. Kreistið lime-safa yfir rétt áður en borið er fram.
Passar fyrir 4.

Grillaður sítrónulax í álbakka.
800 gr. laxaflak, roðflett og beinlaust
smjör
safi úr 1 1/2 sítrónu
4 sítrónusneiðar
1 búnt söxuð steinselja, helst ítölsk (Hún verður bara að vera ítölsk, annars er allt ónýtt)
1 dl rjómi eða sýrður rjómi
½ dl þurrt hvítvín (má sleppa, en auðvitað verður að vera eitthvað fútt í þessu)
salt og pipar
Leggið saman tvo stóra álpappírsrenninga. Smyrjið álpappírinn með smjöri. Leggið laxaflakið á. Skerið flakið í fjóra bita, passið að skera ekki í gegn. Hellið sítrónusafanum yfir og setjið sítrónusneiðarnar í raufarnar þrjár. Sáldrið steinseljunni yfir. Saltið og piprið. Hellið rjóma og víni yfir og lokið álpappírnum þétt. Grillið í 10 – 12 mínútur. Gott með pastasalati og baguette.

Áhugaverðir tenglar.

Fjölbreyttar uppskriftir af grillmat á vefsíðunni,
Gaman og alvara. 1/8
Svínakjöt á grillið. Fróðleikur og uppskriftir á vef framleiðenda svínakjöts 
George Foreman heilsugrillið.
Einfalt, fljótlegt og þægilegt.
Grilltækið er hægt að nota fyrir allan mat sem hægt er að steikja í sneiðum. Látið hugmyndaflugið ráða ferðinni.
Fjöldi uppskrifta af grillréttum 
 |






|