|


Skráðu þig á póstlistann:


|
Uppskriftir


Kindakæfa.
Kæfa er alltaf vinsælt álegg á brauð. Ódýr og auðveld að útbúa, tilvalið að nýta súpukjötsbita og álíka í kæfuna. Geymist í marga mánuði í frysti.
Innihald
3 kg. Lambakjöt,
2 stk. Lárviðarlauf
3 msk. Salt
4-5 stk. Laukar
1-2 tsk. Pipar
1 tsk. Allrahanda
Vatn
Aðferð
Látið suðu koma upp á vatninu, setjið kjötið í pottinn ásamt lárviðarlaufum, gróft söxuðum laukum og hluta af saltinu, vatnið á að fljóta aðeins yfir kjötið. Sjóðið kjötið það meyrt að auðvelt er að tína beinin úr því, tekur u.þ.b. 45 – 60 mín. Hreinsið bein og sinar úr kjötinu og hakkið ásamt lauk. Hrærið hakkið í hrærivél og kryddið að smekk, athugið að bragðið dofnar við geymslu. Til að kæfan sé vel smyrjanleg getur þurft að þynna hana með soði. Setjið í ílát, skyrdósir eru t.d. mjög góðar.
Lambalæri grillað á teini.
Safarík lambasteik með mildu hvítlauksbragði.Ráðlegt er að hafa álbakka undir stórum steikum á grillinu svo kjötsafinn renni ekki á glóðina, svo er safinn kjörinn í sósu.
Innihald
1 stk. Lambalæri
1 stk. Hvítlauk
1 tsk. Paprikuduft
1 dl. Rauðvín
1 dl. Olía
1/2 stk. Sítróna
1 tsk. Worcestershiresósa
1/2 tsk. Svartur pipar
Salt
Aðferð
Hreinsið og þerrið kjötið vel. Blandið saman nýmuldum pipar og paprikudufti og nuddið á lærið. Blandið saman rauðvíni, olíu, sítrónusafa og Worcestershire sósu. Skerið hvítlauksrifin í granna fleyga. Stingið með oddhvössum hnífi ca. 2 sm. djúp göt í lærið , stingið hvítlauksbitunum þar í. Stingið snúningsteini í mitt lærið og setjiðá funheitt grillið, látið brúnast á öllum hliðum og komið fyrir sem fjærst hitanum. Pennslið kjötið með kryddleginum og snúið því oft á meðan eldun stendur. Steikingartími fer eftir því hve stórt lærið er og hitanum á grillinu, áætla má rúman klukkutíma í steikingu. Best er að stinga í þykkasta vöðvann og meta hvernig litur er á kjörsafanum, sé safinn rauður þarf kjötið aðeins lengri tíma en þegar hann er rósrauður, nærri glær þá er kjötið eldað. takið kjötið af teininum og látið standa undir álpappír í 10-15 mín. áður en það er skorið.

Grillaðar Lambakótilettur með Papriku.
12 stk. Kótilettur
1 Stk. Paprika græn
1 stk. Paprika rauð
2 stk. Hvítlauksgeirara
2 stk. Rósmaringreinar
2 stk. Marjoramgreinar
Salt og pipar
Olía
Merjið kryddið t.d. í mortel ásamt hvítlauk og olíu og núið því á kótiletturnar. Paprikur settar á tein og ristaðar yfir grillinu þar til þær sviðna á öllum hliðum, þá er hýðinu flétt af þeim og þær skornar í tvent og fræhreinsaðar, penslið með olíu. Kótiletturnar settar á heitt grillið ásamt paprikunum og steikt í u.þ.b. 5 mín. á hvorri hlið. Berið fram funheitt ásamt grilluðum kartöflubátum og góðu saltati.

Innihald
1 1/2 kg. Lambalæri
500 gr. Kartöflur
500 gr. Sætukartöflur
500 gr. Gulrætur
2 stk.Laukar
2 stk. Rauðlaukar
3 stk. Hvítlaukar
2 kvistir Rósmarín
2 kvistir Timían
1 dl. Kjötsoð
1 stk. Sítróna
1/2dl. Ólífuolía
Salt og pipar
Aðferð
Kartöflur þvegnar, þerraðar og skornar í nokkuð stóra báta. Hreinsið gulrætur, afhýðið lauka og skerið í sambærilega bita. Setjið grænmetið í ofnskúffu, dreypið olíu yfir, blandið saman og kryddið með salti og pipar. Fituhreinsið og þerrið lærið, kreistið sítrónuna og smyrjið safanum á lærið ásamt steyttum kryddjurtunum, salti og pipar. Steikið í 200°C heitum ofni í u.þ.b. 30 mín. bætið þá gróft skornum hvítlauknum yfir grænmetið og eldið áfram í álíka tíma, eða þar til kjarnhiti mælist 60°C. Takið kjötið út og látið standa í ca. 10 mín. til að halda kjötsafanum í steikinni.

1 kg. Saltkjöt
200 gr. Gular hálfbaunir
1½ ltr. Vatn
100 gr. Beikon
200 gr. Gulrætur
200 gr. Rófur
1 stk. Lauk
½ stk. Blaðlaukur
1 stk. Sellerístöngull
1 stk. Súputeningur
Baunir lagðar í bleyti í minnst 12 klst. látið síðan renna af baununum og setjið þær í pott og helming vatnsins. Sjóðið í 15-20 mín. og fleytið froðu ofan af soðinu. Útvatnað saltkjötið sett út í pottinn og soðið áfram í 1 klst. bætið við vatni, muna að fleyta froðu ofan af. Afhýðið grænmetið og skerið í hæfilega bita ásamt beikoni og setjið í pottinn síðustu 20-30 mín. Bragðbætið með súputening. Berið soðnar kartöflur og rófur með.

Nauta pottréttur.
Matarmikill og bragðgóður pottréttur, hentar vel sem veisluréttur
því betra er að búa hann til með góðum fyrirvara. Afganga má frysta.
Innihald
500 gr. Nautakjöt
5 stk. Laukar
3 stk. Gulrætur
3 stk. Hvítlauksrif
1 stk. Paprika græn
1 stk. Paprika rauð
1/1 ds. Tómatar flysjaðir
1 ds. Tómatpurre
3 tsk. Paprikuduft
1/4 tsk. Chillipipar
Salt og svartur pipar
2-3 dl. Matreiðslurjómi
1 msk. Maizenamjöl
5 dl. Kjötsoð.
3 msk. Olía
Grænmetið þvegið, snyrt og skorið í sneiðar. Kjötið, (oftast bógur eða framhryggur)
skorið í fremur smáa munnbita. Olía hituð í potti og laukurinn mýktur í henni, þá er kjötið brúnað. Mörðum hvítlauk ásamt restinni af grænmeti bætt út í pottinn og steikt aðeins. Hiti lækkaður,
kjötsoðinu bætt í pottinn ásamt tómötum og tómatkrafti. Bætið kryddinu í og látið
smá krauma undir loki þar til kjötið er meyrt. Hrærið maizenamjölið í 1 bolla af
vatni og þykkið réttinn. Bætið rjóma í pottinn og smakkið til. Berið fram með
soðnum hrísgrjónum, salati og góðu brauði.

Hamborgarhryggur.
Innihald
1 kg hamborgarhryggur á beini
2-3 msk. púðursykur
1 msk sætt sinnep
1 msk smjör
Aðferð
Sjóðið kjötið í u.þ.b. 15 mín. skiptið þá um vatn svo kjötið verði ekki of salt, sjóðið áfram í 15 mín. Setjið á beinhliðina í ofnskúffu og smyrjið á hrygginn blöndu af púðursykri, sinnepi og smjöri. Steikið í ofni við 220°C hita í ca. 20 – 25 mín. Athugið að gott er að geyma soðið til að nota í sósu.
Fljótlegar hakkbollur.
300 – 400 gr. Kjöthakk
1 stk. Egg
½ pk. Saltkex (t.d. Ritz)
2 – 3 msk. Kjúklingasúpuduft
Öllu blandað saman og hnoðað í bollur, steikt í olíu.
Gott að hafa súrsæta sósu, hrísgjón og grænmetisasalat með.
Lambalæri með hvítlauk.
1 stk. Lambalæri
2-3 hvítlauksrif
1 stk. rauðlaukur
150 gr. smjör
1 dl. rauðvín
2 msk. sítrónusafi
salt og pipar
Smátt saxaður laukur mýktur á pönnu í örl. klípu af smjöri, varist að laukurinn brúnist. Rauðvíni bætt út í og allt soðið rólega í 3 - 4 mín. Látið kólna, hrærið lauknum saman við mjúkt smjörið og bragðið til með sítrónusafa, salti og nýmöluðum pipar. Beittum hnífi stungið hér og þar í kjötið. Hvítlaukur skorinn langsum og bitunum stungið í skurðina. Kryddið kjötið vel með salti og pipar. Eldið á vel heitu grilli í u.þ.b. 20 mín. minnkið þá hitann og steikið áfram í ca. 40 mín. Pennslið með Rauðlaukssmjörinu af og til.
Lambalæri með einiberjum.
1 lambalæri
2 tsk. timian
2 tsk. rósmarin
10 stk. einiber
salt og pipar
Einiberin mulin ásamt jurtum, salti og pipar blandað saman við. Kryddinu nuddað vel í kjötið. Lærið brúnað á öllum hliðum í potti með smá olíu. Sett í ofnskúffu og steikt við 110°C í u.þ.b. 1 til 1 og 1/2 klst. eða þar til kjarnhiti hefur náð 65 °C.
Blóðmör.
1 l. Blóð
2 dl. Vatn
½ msk. Salt
300 gr. Haframjöl
500 gr. Rúgmjöl
500 gr.Mör
Vambir.
Saumaðar vambirnar látnar liggja í köldu saltvatni. Mörinn brytjaður og blóðið síað í gegnum fínt sigti. Vatni og salti hrært saman við blóðið og mjölinu bætt út í, síðast mörnum. Setjið í keppina, hafið þá rúmlega hálf fulla og saumið fyrir opið. Soðið í vel söltu vatni í 3 klst.
ATH. Farið gætilega með blóðið, það eru mjög góð skilyrði fyrir gerla í því.
Blóð er ríkt af próteini og járni.
Lifrarpylsa.
450 gr. Lifur
100 gr. Nýru
3 dl. Kjörsoð
½ msk. Salt
100 gr. Haframjöl
100 gr. Rúgmjöl
100 gr. Hveiti
300 gr. Mör
Vambir
Saumaðar vambirnar látnar liggja í köldu saltvatni. Mörinn brytjaður. Lifur og nýru þvegin himnur og sinar hreinsað burt, hakkið fínt. Soði og salti bætt út í, síðan er mjölinu bætt saman við og hrært vel. Hafið blönduna frekar þykka. Setjið í rúmlega hálf fulla keppi. Saumið vel fyrir opið. Sjóðið í vel söltu vatni í 3 klst.
Fín Lambalifur.
500 gr. Lambalifur
2 stk. laukar
75 gr. smjör
kryddlögur
1 dós hrein jógúrt
1-1/2 dl. Vatn
4 msk. tómatsósa
½ paprika
1 tsk. Sykur
Salt og pipar
Skerið lifur í ræmur, blandið kryddlög og leggið lifrina í, látið bíða í u.þ.b. 30 min. þá tekin úr kryddleginum og þerruð vel. Saxaður laukur mýktur á pönnu, takið til hliðar. Lifrin steikt í olíu á vel heitri pönnu í örlitla stund, varist að ofelda. Hellið kryddleginum og lauknum yfir. Berið fram með salati og góðum kartöflum.

Áhugaverðir tenglar

Fjöldi kjötuppskrifta á vef Mbl. is, Meistaramatur.
Fjöldi kjötuppskrifta á vefnum Eldhus.is 
Ásíðu Dansræktar JSB eru uppskriftir af glæsilegum kjötréttum. 
KJARNAFÆÐI með fróðleik, uppskriftir og tilboð 
Kjöt.is hefur að geyma fjölda uppskrifta með kjöti, ásamt miklum fróðleik
af ýmsu tagi. 
Osta og smjörsalan heldur úti glæsilegri síðu með uppskriftum. 
Safn af fjölbreyttum uppskriftum með villubráð. 
|







|