-

................................... ... ... ... ..PPMeðlæti..... -

Heim

Fiskur

Fuglar

Kjöt

Grill

Grænmeti

Ávextir

Súpur

Pasta

Bakstur

Drykkir

Tilboðin

Tenglar

-


Uppskriftir

. Salsa sósa frá Mexikó.
.
Fersk hvítlaukssósa.
. Shopska salat.
.
Agúrku Raita.
.
Orlydeig.
.
Grillaðir kartöflubátar.
.
Kartöflustappa (mús).
.
Guacamole.
. Ristaðar kartöflur. 
-

. Aðalréttir
. Forréttir
. Eftirréttir
. Skyndiréttir
. Smáréttir
. Meðlæti
. Pasta
. Grænmeti
. Ávextir
. Súpur
. Sósur
. Drykkir
. Krydd
. Fróðleikur

-
Skráðu þig á póstlistann:
Þitt netfang Fornafn

-



Salasa frá Mexikó.

Salsa sósa frá Mexikó.

Mjög góð uppskrift að salsasósu til að nota á t.d. Taco, Tortillakökur eða sem meðlæti með mat. Hvaða grænmeti er notað í réttinn er einungis smekksatrið og tilvalið að prófa sig áfram.
Innihald
8 stk. Tómatar
1-2 stk. Chilli
2-3 stk. Hvítlauksgeirar
1 stk. Rauðlaukur
4-5 msk. Kóriander
1 msk. Sítónusafi
Hnífsodd af Cummin
Hnífsodd af Salti
Aðferð
Steinhreinsaðir chilliávextir og tómatar saxaðir frekar smátt. Hvítlauksgeirarnir marðir og saxaðir. Rauðlaukurinn fínt saxaður ásamt fersku kóriander. Blandið öllu saman í skál, bragðbætið eftir smekk með kryddinu og látið standa í kæli og brjóta sig í klukkustundir eða tvær.
 
ör upp
Aftur upp
strik

Hvítlaukssósa.

Fersk hvítlaukssósa.

Einstaklega fersk og góð hvítlaukssósa. Í stað mayonnaise er notaður sýrður rjómi og ólívuolía, því er sósan í hollari kantinum. Hentar einkar vel með grillmat og skelfiski.
Innihald
200 gr. Sýrður rjómi
1/2 dl. Jómfrúar ólífuolía
2 stk. Hvítlauksgeirar
1/2 stk. Lime
2-3 msk.Steinselja
2 tsk. Hunang
Salt og pipar
Aðferð
Hellið ólífuolíu í mjórri bunu saman við sýrðan rjóma, hrærið vel saman ásamt hunanginu. Pressið hvítlauksgeirana, saxið fínt og bætið út í rjómann. Rífið græna lagið af hýði hálfrar Límónu fínt og setjið saman við ásamt fínt saxaðri steinselju. Kryddið með salti og pipar. Best að sósan standi í kæli um stund.
Magn áætlað fyrir 4.
ör upp
Aftur upp
strik

Shopska salat.

Shopska salat.

Þeir sem hafa ferðast til Búlgaríu og nágrannaríkja kannast við þetta frábæra salat, flestir veitingastaðir á þeim slóðum hafa það á boðstólum. Auðvelt og gott með flestum mat.
Innihald
4 stk. Vorlaukar
4 stk. Tómatar
½ stk. Agúrka
2 stk. Paprikur rauðar
1 dl. Steinselja söxuð
1 glas Feta ostur
3 - 4 msk. Olía af ostinum
Salt og svartur pipar
Aðferð
Saxið grænmetið frekar smátt ásamt steinselju. Kryddið með salti og ný möluðum svörtum pipar. Og blandið saman, dreifið olíu yfir. Saxið eða myljið Feta ostinn og stráið yfir grænmetið.

 

ör upp
Aftur upp
strik


Agúrku Raita.

Agúrku Raita.

Agúrku Raita er bæði notað sem sósa og meðlæti með grillréttum og karrýréttum
1 stk. Agúrka
1 ds. Grísk jógúrt
½  tsk. Cumminduft
2 stk. Vorlaukar
Salt og pipar
½  tsk. Engifer
2 stk. Hvítlauksgeirar
Fersk mynta
Aðferð
Skerið agúrkuna langsum í þunnar sneiðar, stráið salti yfir sneiðarnar og látið standa í u.þ.b. 20 mín til að losa vökva úr agúrkunni. Hrærið saman í skál jógúrt, mörðum hvítlauk, rifnum engifer, fínt söxuðum vorlaukum, og muldu cummini. Saxið agúrkuna fínt og blandið út í sósuna, smakkið til með salti og pipa. Látið í kæli í ca. ½ klst. Skreytið með ferskri myntu.

 

ör upp
Aftur upp
strik


Fiskur í Orly-hjúp.

Orlydeig.

Þessi deighjúpur er einstaklega góður, á vel við fisk, skelfisk og kjöt. 
Innihald
3 dl. Hveiti 
2 msk. Strásykur
1 stk.  Egg
3 dl. Pilsner
1 msk.  Olía
1 tsk. Salt
Aðferð
Skiljið eggjahvítu frá rauðunni. Hrærið saman eggjarauðu, pilsner, olíu og sykur. Bætið hveitinu út og í látið deigið bíða og brjóta sig í u.þ.b. 1 klst. Hafið deigið svipað að þykkt og vöffludeig, ef það er of  þykkt þynnið með pilsner, ef það er of þunnt þykkið með örlitlu hveiti. Að síðustu stífþeytið eggjahvítuna og blandið henni varlega í deigið.
ör upp
Aftur upp
strik

 


Grillaðir kartöflubátar.

Grillaðir kartöflubátar.

Innihald
500 gr. Kartöflur
4 msk. Ólífuolía
1 tsk. Rosmarin
1 tsk. Oregano
Salt og pipar
Aðferð
Þvoið og þerrið kartöflurnar og skerið í báta. Steytið kryddið í mortel og blandið í skál ásamt olíu, veltið kartöflubátunum upp úr blöndunni. Raðið á álbakka eða filmu og steikið við góðan hita þar til þeir eru mjúkir í gegn. Tími fer eftir hita á grillinu og þykkt bátanna.  

 

ör upp
Aftur upp
strik

Kartöflumús.

Kartöflustappa (mús)


 
1 kg. Kartöflur
50 gr. Smjörlíki
3 dl. Mjólk
2 msk. Strásykur  
Salt  og pipar eftir smekk
Kartöflur soðnar og maukaðar vel með kartöflujárni.
Öllu hrært saman við, varist að sé hrært og mikið getur stappan orðið seig.
ör upp
Aftur upp
strik

Guacamole.

Guacamole.

1/2 lítill laukur
4 tómatar, flysjaði, hreinsaðir og saxaðir fínt
1 ferskur chillepipar grænn saxaður
1/2 paprika, græn, söxuð fínt
1 msk. saxaður kóríander  
2 avókadó vel stór
2 tsk. sítrónusafi
1 msk. ólífuolía
salt og pipar
Lauk, tómötum, chilliepipar, papriku og kóríander blandað saman í skál. Skerið avókadóin langsum í tvennt og steinn fjarlægður, takið aldinkjötið úr með skeið. Stappið gróft saman við tómatahræruna. Bætið salti, pipar og sítrónusafa og að síðustu olíunni saman við og hrærið vel.
 
ör upp
Aftur upp
strik

Ristaðar kartöflur.

Ristaðar kartöflur.   

                                                           
4-5 stk.  Bökunarkartöflur
1 dl. Matarolía                   
Salt og pipar   
Rífið kartöflurnar með grófu rifjárni og setjið með matskeið á pönnu, fletjið aðeins og steikið gullin brúnar í vel heitri olíu. Kryddið heitar kartöflurnar.
ör upp
Aftur upp
strik

 

-
Áhugaverðir tenglar
-

. Vefsíðan Biobu.is, með margvíslegum fróðleik og
uppskriftir úr lífrænni jógúrt. Skoða síðuna. 22/7
. Ostahúsið með osta uppskriftir Skoða síðuna. 22/7
. Nokkrar uppskriftir af meðlæti á síðunni: vefuppskriftir.com Skoða síðuna.
. Meðlæti með lambakjötinu finnurðu á lambakjöt.is Skoða síðuna.
. Himneskt.is býður upp á hollt meðlæti, margt kemur skemmtilega á óvart Skoða síðuna.
ör upp
Aftur upp
strik

-

Góður grautur

-

Lystugur piltur

-

 

Til baka

Senda póst.

 

Síðast uppfært: 31.03.2010

Vefurinn er í stöðugri vinnslu og endurnýjun.


Maturinn.com er með hýsingu hjá KIOSK.ws
Maturinn.com
Elías Stefánsson
Reykjavík.
Sími: 695 2724
maturinn@maturinn.com