Skráðu þig á póstlistann:
|
Uppskriftir


Spaghetti Bolognese.
600 gr. kjöthakk
2 stk. Laukur
3 stk. Hvítlauksgeirar
3 msk. Olía
1 stk. Gulrót
1 stk. Sellerí
1 ds. Tómatar
3 dl. Kjötsoð
Timian
Oregano
Steinselja.
Salt og pipar
Saxið lauk og hvítlauk og mýkið í olíu á pönnu. Brúnið kjöthakk.
Saxið grænmeti og bætið á pönnuna ásamt tómötum, tómatsafa og kjötsoði.
Látið sjóða u.þ.b. 30 mín. eða þar til sósan þykknar dálítið. Kryddið að smekk.
Sjóðið spaghetti eftir leiðbeiningum á pakkningu og berið fram með sósunni.
Gott að rífa parmaost yfir og hafa gott brauð með.

Kotasælu - Lasagne.
12 stk. Lasagneplötur
3 stk. Lauk
4 stk. Hvítlauksgeirar
2 msk. matarolía
500 gr. Tómatar í dós
½ dl. Tómatpurre
Salt, pipar, oregano, timian, basilkum.
400 gr. Kotasæla
100 gr. Mozzarellaostur
Salt, pipar,
Oregano, timian og basilkum.
Mýkið fínt saxaðann laukinn og hvítlauksrif í olíu á pönnu. Tómötum og tómatpurre bætt saman við og kryddið eftir smekk, sjóðið vægt í 10- 15 mín. Blandið kotasælu saman við og takið af hitanum. Lasagneplötur settar í botninn á eldföstu fati, smurðu með olíu. Þá er lagi af sósu dreift yfir og rifnum mozzarellaosti stráð þar yfir. Þetta er endurtekið eftir þörfum. Bakið við 175 - 200°C í 30-40 mín.
Pasta með skinku og osti.
8 dl vatn
1/2 tsk salt
1 msk matarolía
150 g pastaskrúfur eða slaufur
50 g blaðlauksostur
1 dl rjómi
50 g rifinn ostur
100 g skinka
1 tsk pastakrydd
¼ tsk salt
pipar á hnífsoddiHitaðu vatnið að suðu og settu svo saltið, matarolíuna og pastað í pottinn og sjóddu í 10 mín.
Settu rjómann og ostinn í pott og hitaðu þar til rifni osturinn er bráðnaður.
Bættu skinkunni út í kryddaðu.
Helltu pastanu í sigti og láttu renna vel vatnið af því.
Sett í skál og sósunni hellt yfir.
Pastasalat fyrir 4.
150 g pasta
1 rauðlaukur
2 tómatar
¼ hluti gúrka
1 rauð paprika
Grænt salat eftir smekk
75 -100 g ferskur mozzarella
2 harðsoðið egg
3 sneiðar eðal skinka (60 g)
50 g vínber
25 g ristaðar hnetur að eigin vali
½ dl ólífuolía
1 tsk balsamico edik
1 tsk agave síróp
1 tsk tamari sósa eða soya sósu
Pipar á hnífsoddi.
Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum á pakkanum og kælið. Rífið salatið niður, skerið laukinn smátt, papriku og vínber. Öllu blandað saman við pastað. Raðið hnetum eggjum, tómötum og gróf rifnum osti yfir. Ólífuolíunni ,edikinu, sírópinu og tamari sósunni blandað vel saman og helt yfir salatið. Gott með grófu brauði. og kotasælu

Áhugaverðir tenglar

Matarbitinn er með nokkrar uppskriftir með pasta 30/7
Fjölbreyttir pastaréttir á Matseld.is 30/7
Á vefnum Eldhus.is eru margar pasta og pizzu uppskriftir 22/7
|





|