" /> Sósur - Maturinn.com
-

................................... ... ... ... ..PPSósur ....
-

Heim

Fiskur

Fuglar

Kjöt

Grill

Grænmeti

Ávextir

Súpur

Pasta

Bakstur

Drykkir

Tilboðin

Tenglar

-

Húsráð

. Fersk hvítlaukssósa.
. Fljótleg Sinnepsósa.
. Fisksósa.
. Hindberjasósa.
. Kirsuberjasósa.
. Rauðvínssósa.
. Graflaxsósa.
. Graflaxsósa 2
. Graflaxsósa 3
. Rækjusósa.
. Bernaise-sósa.
-

. Uppskriftir
. Aðalréttir
. Meðlæti
. Pasta
. Grænmeti
. Ávextir
. Súpur/ sósur
. Drykkir
. Krydd

-
Skráðu þig á póstlistann:
Þitt netfang Fornafn

-

Hvítlaukssósa.

Fersk hvítlaukssósa.

Einstaklega fersk og góð hvítlaukssósa. Í stað mayonnaise er notaður sýrður rjómi og ólívuolía, því er sósan í hollari kantinum. Hentar einkar vel með grillmat og skelfiski.
Innihald
200 gr. Sýrður rjómi
1/2 dl. Jómfrúar ólífuolía
2 stk. Hvítlauksgeirar
1/2 stk. Lime
2-3 msk.Steinselja
2 tsk. Hunang
Salt og pipar
Aðferð
Hellið ólífuolíu í mjórri bunu saman við sýrðan rjóma, hrærið vel saman ásamt hunanginu. Pressið hvítlauksgeirana, saxið fínt og bætið út í rjómann. Rífið græna lagið af hýði hálfrar Límónu fínt og setjið saman við ásamt fínt saxaðri steinselju. Kryddið með salti og pipar. Best að sósan standi í kæli um stund. Magn áætlað fyrir 4.

 

Aftur upp.
Aftur upp.

-


Fljótleg Sinnepsósa

Fljótleg Sinnepsósa

 

Einstaklega einföld og góð sinnepsósa sem hentar vel með pasta eða fiskréttum.
Innihald
2 msk. Létt mayonnaise
5 msk. ABmjólk
3 msk. Sætt sinnep
2 tsk. Dijon sinnep
1 tsk. Hunang
Aðferð
Hellið ABmjólk í kaffi-filtpoka og látið standa í ca. ½ klst. svo mesti vökvinn renni úr henni, hún þykknar og verður ekki eins súr. Hrærið öllum innihaldsefnum saman og bragðið til með sinnepi eftir smekk. Berið sósuna fram vel kalda.

Aftur upp.
Aftur upp.

-

Fiskbuff með fisksósu.

Fisksósa.

1 ds. Sýrður rjómi
1 msk. Mayonnaise
3 stk. Egg
6 tsk. Barbeque relish
3 tsk. Dijon sinnep
3-4 msk. Tómatsósa
Harðsjóðið eggin og saxið smátt, hrærið allt vel saman.
Smakkið til og látið í kæli góða stund.

 

Aftur upp.
Aftur upp.

-



Hindberjasósa.

Hindberjasósa.

100 gr. Flórsykur
1 dl. Vatn
100 gr. Hindber, fersk eða frosin
1 tsk. Sítrónusafi
Allt sett í mixara og hrært vel saman.
 
Aftur upp.
Aftur upp.

-

Kirsuberjasósa.

800 gr.  Kirsuber ( glerkrukka ) 
1 msk.  Maizenamjöl 
1 dl.  Vatn 
Kirsuberin sett í pott ásamt safanum og vægri suðu komið upp.
Maizenamjölið leyst upp í köldu vatni. Potturinn tekinn af hellunni og maizenamjölinu bætt saman við.
Látið sjóða í u.þ.b. 1 mín. Sósan getur verið hvort sem heldur heit eða köld.
Aftur upp.
Aftur upp.

-

Rauðvínssósa.

Innihald
8 dl.  Svínakjötsoð  
40 gr. Hveiti
40 gr. Smjörlíki
1 dl. Rauðvín
1 msk. Rifsberjahlaup
1 dl. Rjómi
Salt og pipar
Svínakjötskraftur

Aðferð
Hrærið smjörlíki og hveiti í smjörbollu og þynnið bolluna með sigtuðu soðinu. Bætið rauðvíni, rifsberjahlaupi og rjóma út í og bragðbætið með  salti, pipar og kjötkrafti ef vill.
Aftur upp.
Aftur upp.

-

Graflax.

Graflaxsósa.

250 gr. Mayonaise
1 msk. Dijonsinnep
1 msk. Hunang
2 tsk. Dill
Salt og pipar
3 msk. Rjómi
Mayonaise, sinnep, hunang og krydd hrært saman, þeyttum rjóma blandað varlega saman við. Bragðið til með kryddinu. Kælið.

 

Aftur upp.
Aftur upp.

-

Graflaxsósa 2

Púðursykur dökkur
Dijon sinnep
Ferskt dill.
Salt og pipar
Hlutföll eftir smekk.
Hrærið saman púðursykur og sinnep. Fínsaxið dillið og blandið saman við.
Kryddið með salti og hvítum pipar.

 

Aftur upp.
Aftur upp.

-


Graflaxsósa 3

Sýrður rjómi
Púðursykur dökkur
Dijon sinnep
Ferskt dill.
Salt og pipar
Hlutföll eftir smekk. Hrærið saman púðursykur og sinnep.
Fínsaxið dillið og blandið saman við. Kryddið með salti og hvítum pipar.
 
Aftur upp.
Aftur upp.

-

Rækjur.

Rækjusósa

200 gr. R ækjur
1/2 d.l Rjómi
4-5 dl. Kjöt eða fisksoð
2 msk. Hveiti
30 gr. Smjörlíki
Salt og pipar
Smjörlíkið brætt í potti, ekki brúna. Hveiti hrært saman við og bollan þynnt smátt og smátt með soðinu. Hrærið vel þar til sósan er jöfnuð, þá er rækjunum bætt saman við. Sósan er mjög góð með fiski.


Aftur upp.
Aftur upp.

-

 

Bernaise-sósa.

6 stk. eggjarauður
500 gr. smjör
3 - 4 msk. hvítvíns edik
1 msk. ferskt saxað etragon
Salt og Svartur pipar úr kvörn
Karrý á hnífsoddi
Paprikuduft á hnífsoddi
½ msk. Dijon sinnep
Kjötkraftur ef vill
Fyrst skal taka fram að við þessa sósugerð má hiti aldrei vera mikill, annars verða eggin hleypt og sósan getur aðskilið sig. Ekki skal nota pott úr áli. Bræðið smjörlíkið við vægan hita. Kælið og fleytið tærri fitunni ofan af  botnfallinu. Eggjarauður þeyttar yfir vatnsbaði ásamt ediki . sinnepi og kryddinu þar til blandan er létt og ljós. Takið af vatnsbaðinu og hrærið smjörinu saman við í mjórri bunu, smátt og smátt og þeytið vel allan tímann. Verði sósan of þykk má þynna hana með volgu vatni, en varlega. Kryddið betur ef vill.
Aftur upp.
Aftur upp.

-

-

.

-

-

-

 

Heim

Senda póst.

 

Síðast uppfært 21.10.2009->->->->-> ->>

Vefurinn er í stöðugri vinnslu og endurnýjun.
Maturinn.com er með hýsingu hjá KIOSK.ws

Maturinn.com
Elías Stefánsson
Reykjavík.
Sími: 695 2724
maturinn@maturinn.com