
Skráðu þig á póstlistann:
|
Uppskriftir


Humarsúpa.
Hún er ljúfeng og vinsæl þessi humarsúpa, ekki verra að matreiðslan er auðveld.
Innihald
12 stk. Humarhalar
1/2 stk. Laukur
6 stk. Hvítlauksgeirar
4 stk. Sveppir
1 msk. Tómatþykkni
1 tsk. Paprikuduft
1/2 tsk. Karrí
3 msk. Smjör
3 dl. Hvítvín
1,5 ltr. Vatn
2 tsk. Fiskikraftur
1 tsk. Kjötkraftur
2 dl. Matreiðslurjómi
Aðferð
Skelbrjótið humarinn og fjarlægið görnina. Steikið skelina í 4-5 mín. í potti. Sveppir, laukur og hvítlauksgeirar saxaðir frekar smátt og settir í pottinn ásamt kryddi og tómatþykkni. Bætið vökvunum og krafti í pottinn og látið hægsjóða í 45-50 mín. Síið soðið og þykkið með smjörbollu eða maizena. Bætið matreiðslurjóma í súpuna og smakkið til. Skerið humarhalana í tvennt og setjið í súpuskál og hellið funheitri súpunni yfir, það er næg eldun fyir humarinn. Skreytið með t.d. timiankvisti eða steinselju.

Auðveld kakósúpa.
3 msk. sykur
2 -3 msk. kakóduft
1 dl. Vatn
¾ l . mjólk
1 msk. Maísenamjöl
1 tsk. Smjör
Örlítið salt
Vanilludropar
Sykur og kakóduft hrært saman í skál, vatni hrært í smáum skömmtum saman við svo blandan þynnist. Mjólkin hituð að suðu. Kakóblandan sett út í ásamt smjörinu, bragðað til með salti, sykri og vanilludropum.
Maísenamjölið hrært upp í köldu vatni og súpan jöfnuð með því. Gott að hafa tvíbökur með og þeyttan rjóma.

Hafragrautur í örbylgjuofni.
1½ dl. Haframjöl
3 dl. Vatn
Mjólk út á.
Hafragrjón og vatn sett í skál og eldað með fullum styrk í 2½ mín.
Þeir sem vilja salta og sykra geri það eftir eldun, annars geta grjónin orðið seig.
Viltu tilbreytingu:

Gott getur verið að hræra Kakómalti í grautinn.
Múslí saman við gerir grautinn enn betri.
Notið eplasafa í stað helmings af vatninu og rífa epli yfir, toppa með kanilsykri.
Smátt saxaðir ávextir eru góðir út í hafragraut.

Áhugaverðir tenglar

Súpur af ýmsu tagi, úrval af uppskriftum. 22/10
Eldhús.is er með fjölda af súpuuppskriftum. 30/7
Glæsilegar súpur á mbl.is. 30/7
Kjötsúpa er sígild, Lambakjöt.is er með fjölda af súpu uppskriftum á glæsilegm vef sínum. 
Girnilegar súpur á vefnum Dansrækt JSB. 
Súpur og sósur í úrvali á Ostur.is. 
|




|