-

Maturinn.com

.............................. uppskriftirUUU._Uppskriftir - Grænmeti ...-

Heim

Fiskur

Fuglar

Kjöt

Grill

Grænmeti

Ávextir

Súpur

Pasta

Bakstur

Drykkir

Tilboðin

Tenglar

-

Uppskriftir

. Gott Tómatmauk.
. Gratinerað grænmeti.
. Guacamole.
. Sesar-salat með ----------steiktum risarækjum.
. Mjög einfalt salat.
. Blómkálsbaka.
. Tómat og -----------------mozzarellasalat með -----basilolíu
. Blaðlauksbaka.
. Kartöflusalat.
. Kartöflugratín. 
. Kartöflubátar.
. Fylltar kartöflur.
. Fylltar bakaðar kartöflur.
. Ofnbakaðir ----------------kartöflubátar.
. Kartöflustappa.

-

. Aðalréttir
. Forréttir
. Eftirréttir
. Skyndiréttir
. Smáréttir
. Meðlæti
. Pasta
. Grænmeti
. Ávextir
. Súpur/ sósur
. Drykkir
. Krydd
. Fróðleikur


-

Góður grautur

-

 

 

Gott Tómatmauk.

500 gr. tómatar
½ sítróna
3/4 dl. sykur
1 pk. appelsínu royal hlaup
Skerið kross í tómathýðið setjið þá í sjóðandi vatn í augnablik, þá er auðvelt að fletta hýðinu af þeim. Sjóðið tómatana í potti ásamt sykrinum í 25 – 30 mín. Bætið sítrónusafa og hlaupi saman við. Setjið heitt á hreinar krukkur og lokið.

 

Velja uppskrift

Aftur upp
-

 

Gratinerað grænmeti.

1 stk.Blómkálshaus
500 gr. Broccoli
1stk. púrrulaukur
1 paprika rauð
500 g.r gulrætur
Salt og svartur pipar
Skvetta  af olivuoliu
rifinn ostur
Grænmetið skorið í hæfilega bita og raðað í eldfast mót, kryddað að vild, smjör og ostur sett yfir og bakað í ofni við 180-200°C.

Velja uppskrift

Aftur upp

-

Guacamole.

1/2 lítill laukur
4 tómatar, flysjaði, hreinsaðir og saxaðir fínt
1 ferskur chillepipar grænn saxaður
1/2 paprika, græn, söxuð fínt
1 msk. saxaður kóríander  
2 avókadó vel stór
2 tsk. sítrónusafi
1 msk. ólífuolía
salt og pipar
Lauk, tómötum, chilliepipar, papriku og kóríander blandað saman í skál. Skerið avókadóin langsum í tvennt og steinn fjarlægður, takið aldinkjötið úr með skeið. Stappið gróft saman við tómatahræruna. Bætið salti, pipar og sítrónusafa og að síðustu olíunni saman við og hrærið vel

Velja uppskrift

Aftur upp

-

 

Mjög einfalt salat.

300 - 400 g af blönduðu grænmeti,
t.d. kínakál, tómata, agúrku, papriku, sveppi.

Dressing:
10 g af góðri olíu
Skvettu af Balsamic Edik
1 tsk Dijon sinnep
skvettu af sítrónusafa .
Grænmetið saxað í meðalagi gróft, sett í skál.
Allt sem á að fara í sósuna hrært saman og blandað samanvið salatið.
Velja uppskrift
Aftur upp

-

Blómkálsbaka

800 g blómkál
300 g spergilkál
300 g hvítkál
salt
50 g smjör
3 msk hveiti
300 ml mjólk
1 msk ferskt timjan, saxað (eða 1 tsk þurrkað)
hvítur pipar
1 ostarúlla með hvítlauk og steinselju
Aðferð:
Ofninn hitaður í 180°C Blómkál og spergilkál tekið sundur í stóra kvisti og stönglarnir skornir í sneiðar. Hvítkálið skorið í ræmur eða bita.
Saltvatn hitað í stórum potti og kálið soðið í 5-8 mínútur, eða þar til það er tæplega meyrt - best er að setja kálstönglasneiðarnar í pottinn fyrst og láta þær sjóða ögn lengur en hitt.
Á meðan er smjörið brætt í öðrum potti, hveitinu hrært saman við og síðan er mjólkinni hrært saman við smátt og smátt og sósan bökuð upp.
Kryddað með timjani, pipar og salti og látið malla í nokkrar mínútur.
Vatninu hellt af kálinu og það sett í eldfast fat.
Ostarúllan skorin í bita, sett út í sósuna og hrært þar til osturinn er bráðinn.
Sósan á að vera þykk en ef hún er of þykk má þynna hana ögn með mjólk.
Hellt jafnt yfir kálið. Sett í ofninn og bakað í 25-30 mínútur, eða þar til gratínið er gullinbrúnt.

Velja uppskrift

Aftur upp

-

Sesar-salat með steiktum risarækjum
Fyrir 6

 
½ stk meðalstór haus jöklasalat
18 stk risarækjur, hráar
2 dl brauðteningar
2 msk olía
salt og pipar
1 stk rauð paprika í teningum
Salatsósa:
2 stk ansjósuflök
4 stk fersk basillauf
1msk kapers
1 tsk dijon sinnep
½ tsk salt
1msk balsamedik
1 stk hvítlauksgeiri
1 msk rifinn parmesanostur
1 dl ólífuolía
1 stk eggjarauða
Rífið salatið niður, skolið og skiptið á sex forréttadiska.
Steikið rækjurnar í olíunni á pönnu, kryddið með salti og pipar.
Leggið rækjurnar á salatið og stráið brauðteningum yfir.
Hellið síðan sósunni yfir og stráið papriku- teningunum yfir allt saman.

Salatsósan:
Allt er maukað saman í matvinnsluvél. Olíunni er að síðustu bætt varlega út í maukið.

Brauðteningar:
Skerið skorpulausar brauðsneiðar í litla teninga, steikið þá síðan í hvítlaukssmjöri á meðalheitri pönnu og veltið vel þannig að allar hliðar brúnist. Sett á eldhúspappír og látið þorna.

Velja uppskrift

Aftur upp

-

Tómat og mozzarellasalat með basilolíu

2 kúlur af ferskum mozzarella osti
4-5 tímatar, vel þroskaðir en þéttir í sér (helst plómutómatar eða klasatómatar)
sjávarsalat (Maldon)
nokkur basilblöð
4-5 msk jómfrúarolía, hrein eða bragðbætt með basil
nýmalaður pipar

Skerið ostinn og tómatana í álíka margar sneiðar; notið ekki endana. Raðið þeim í hring á fat, tómatsneið og mozzarellasneið til skiptis. Kryddið með svolitlu sjávarsalti og rífið eða skerið niður nokkur basilblöð og dreifið yfir. Dreypið olíunni yfir salatið og malið dálítinn pipar yfir.

Velja uppskrift

Aftur upp

-

Blaðlauksbaka.

Deig:
150 gr heilhveiti
75 gr smjör
1 tsk olía
1-2 msk kalt vatn

Fylling:
200 gr blaðlaukur
2 dl grænmetissoð
200 gr kotasæla
3 egg
100 gr rifinn ostur
35 gr valhnetukjarnar saxaðir
½ tsk paprika
½ tsk sellerísalt
½ tsk hvítur pipar

Hnoðið deigið í matvinnsluvél og geymið í ísskáp á meðan fyllingin er löguð.
Skerið blaðlaukinn í 1-1 ½ cm bita og mýkið í sjóðandi grænmetissoði í 2-3 mín
Takið upp úr soðinu og látið leka af lauknum. Hrærið vel saman kotasælu, eggi og rifnum osti, blandið varlega saman við soðna blaðlauknum og valhnetukjörnum, kryddið með papriku, sellerísalti og pipar.
Smyrjið eldfast mót og fletjið deigið út um 3 mm þykkt og setjið í mótið, hellið fyllingunni yfir og bakið við 220°C í 25-30 mín.
 

Velja uppskrift

Aftur upp

-



Kartöflusalat.

8 kartöflur,
1 epli,
1 paprika,
Blaðlaukur eftir smekk,
2 harðsoðin egg,
Pipar,
Basilika
Létt maynnonaise,
Sýrður rjómi 5%,
Graslaukur

Kartöflur soðnar, hýddar og skornar í teninga, ásamt eplinu. Paprikan og blaðlaukurinn skorinn í frekar smáa bita. Eggin skorin með eggjaskera. Graslaukur klipptur yfir. Létt mayonnaise og sýrður rjómi hrært saman við og borið fram vel kælt.
Aftur upp.
Aftur upp
-

Kartöflugratín. 

Fyrir 4-6.
500 gr.  Kartöflur
½  lit. matreiðslurjómi               
3-4 rif. pressaður hvítlaukur                 
Salt og pipar
Afhýðið og sneiðið kartöflurnar í frekar þunnar sneiðar
Setjið kartöflurnar í pott og hellið rjómanum yfir, bætið í hvítlauk, salti og pipar, látið sjóða rólega þar til kartöflurnar eru orðnar mjúkar, hræra skal í af og til á meðan.
Rétturinn settur í eldfast mót og bakaður við háan yfirhita þar til rétturinn hefur fengið gullinbrúnan lit.
Aftur upp.
Aftur upp
-

Kartöflubátar.

4 stórar bökunarkartöflur
4 msk ólífuolía
4 msk smjör bráðið
2 tsk sjávarsalt
½ tsk nýmalaður pipar
½ tsk paprikuduft
½ tsk hvítlauksduft
Hitið ofninn í 225°C. Skerið kartöflurnar eftir endilöngu í báta, ca. átta báta úr hverri kartöflu. Blandið saman smjöri og ólífuolíu. Setjið bökunarpappír í ofnskúffu og penslið pappírinn með smjörblöndunni, leggið kartöflubátana á ofnskúffuna og penslið þá með blöndunni, bakið kartöflurnar þar til þær eru fallega brúnar ca 10 mín. Blandið saman kryddinu og stráið því yfir kartöflurnar og bakið áfram í 15 mín.
Berið fram vel heitar.
Aftur upp.
Aftur upp
-

Fylltar kartöflur.

5 stórar bökunarkartöflur
125 gr beikon
¼ laukur
½  blaðlaukur
150 gr sveppir fínt saxaðir,
100 gr rifinn ostur ef vill
Kartöflurnar þvegnar og bakaðar í 1 kls við 200°C.
Á meðan er beikonið harðsteikt á pönnu, tekið til hliðar , laukur og blaðlaukur látnir mýkjast í beikonfeitinni. Sveppunum bætt á pönnuna og þeir steiktir í nokkrar mín.
Kartöflurnar teknar úr ofninum og skorið lok ofan af þeim og þær holaðar að innan með skeið. Hitið ofninn í ca. 230°C. Maukið innan úr kartöflunum marið í gegn um sigti og blandað saman við beikonið, laukinn og sveppina, fyllingin sett í kartöflurnar, síðan er osti stráð yfir og bakaðar í ofninum þar til osturinn er vel bráðinn.
Aftur upp.
Aftur upp
-

Fylltar bakaðar kartöflur.

6 stk bökunarkartöflur
2 stk vorlaukur
¼ agúrka
½ búnt dill
2 msk matarolía
3 msk sítrónusafi
salt og pipar
125 gr rækjur
90 gr hrein jógúrt
Bakið kartöflurnar í miðjum ofni í 200°C. í u.þ.b. 1 klst. Skerið agúrkuna eftir endilöngu og fjarlægið kjarnann með skeið. Skerið vorlauk og agúrku í litla bita eða þunnar sneiðar og klippið niður dillið. Blandið saman sítrónusafa, olíu og kryddi og hellið yfir rækjurnar og grænmetið. Skerið lok af kartöflunum þegar þær eru bakaðar og holið þær aðeins að innan með teskeið. Stappið jógúrtinni saman við ¾ hluta þess sem skafið var innan úr kartöflunum. Blandið því saman við grænmetið og rækjurnar, kryddið efir smekk, setjið fyllinguna í kartöflurnar og rétturinn er tilbúinn
Aftur upp.
Aftur upp
-

Ofnbakaðir kartöflubátar.

800 gr kartöflur,
4 msk ólífuolía
3 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
1-2 msk ferkar, saxaðar kryddjurtir, t.d. rósmarín, basilíka, timjan
1 msk sítrónusafi
1 msk dijonsinnep
Nýmalaður pipar og salt
Ofninn hitaður í 200 °c. Kartöflurnar burstaðar með vatni, þerraðar og skornar í báta eftir endilöngu. Þeim síðan velt upp úr olíunni og raðað í ofnskúffu klædda smjörpappír.  Kartöflurnar settar í ofninn og bakaðar í ca. hálftíma, eða þar til þær eru meyrar. Kryddið afganginn af olíunni með kryddinu og pennslið kartöflurnar meðan á bökun stendur og snúið tvisvar eða þrisvar svo að þær festist ekki við.
Getur verið gott að skella funheitu grillinu á í lokin til að fá gullinbrúnan lit.
Aftur upp.
Aftur upp
-

Kartöflustappa.

750-1000 gr. kartöflur
1-2 dl. mjólk
2 msk. smjör
salt og pipar
Flysjið kartöflurnar og sjóðið í ósöltuðu vatni. Þegar kartöflurnar eru soðnar eru þær marðar í gegnum sigti eða pressaðar í kartöflupressu. Hitið mjólkina með smjörinu og hrærið saman við kartöflurnar og kryddið í lokin.
Aftur upp.
Aftur upp
 

-

Lystugur piltur

-

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


-

 

Til baka

Senda póst.

 

Síðast uppfært: 04.10.2008

Vefurinn er í stöðugri vinnslu og endurnýjun.

Maturinn.com er með hýsingu hjá KIOSK.ws
Maturinn.com
Elías Stefánsson
Reykjavík.
Sími: 695 2724
maturinn@maturinn.com