Uppskriftir

Aðalréttir
Forréttir
Eftirréttir
Skyndiréttir
Smáréttir
Meðlæti
Pasta
Grænmeti
Ávextir
Súpur/ sósur
Drykkir
Krydd
Fróðleikur


|
Uppskriftir

Reyniberjahlaup.
2 ltr. Reyniber
1 stk. Epli
5 dl. Vatn
1 – 1,5 kg. Sykur
Vel þroskuð berin fryst í sólarhring, jafnvel lengur. Síðan látin liggja í köldu vatni í þrjá sólarhringa til að ná remmu úr berjunum, skipta þarf oft um vatn. Berin soðin ásamt eplabitum í vatninu þar til þau eru farin að mýkjast vel. Gott að hafa nokkra stilka með til að fá hleypiefni. Síið í gegnum fínt sigti eða grisju. Sykurinn látinn bráðna í vökvanum og haldið vægri suðu í ca. 30 mín. eða þar til sykurinn er vel uppleystur.
Veiðið froðuna ofan af. Bæta má við sultuhleypi ef þið teljið þörf á því. Setjið vel heitt á hreinar krukkur og lokið. Geymið í kæli.

Rabarbarabaka.
400 gr. rabarbari
½ dl. hveiti
2 stk. egg
2 ½ dl. sykur
1 ¾ dl. hveiti
1 ½ dl. púðursykur
50 gr. smjör
Rababari þvegin og skorin í ca. 2 cm. bita. Blandið saman rababara, hveiti, sykri og eggjum. Setjið í smurt eldfast mót ca. 24 cm í þvermál. Púðursykri og hveiti blandað saman ásamt smjörinu, blöndunni dreift yfir rabarbarann. Bakað við 200°C hita í ca. 45 mín.
Berið fram með ís.

Bláberjamauk.
1 kg. bláber/aðalbláber
375 gr. sykur
Berin eru hreinsuð og sett í pott ásamt sykrinum.
Soðið í 15-20 mín.
Maukið er síðan sett sjóðandi heitt í vel heitar krukkur og þeim lokað.

Rifsberjasulta.
1 kg rifsber
750 gr sykur
1/2 bolli vatn
Gott að búa til soð af nokkrum stönglum, grænjöxlum og hálfþroskuðum berjum
til að fá soð með náttúrulegu hleypiefni .
Rifsberin sett í pott með síuðu soðinu og sett til suðu.
Sykri bætt í þegar suðan er komin vel upp
Suðutíminn er u.þ.b. 5 - 20 mínútur.
Berin kramin að vild þar til æskileg áferð er fengin.
Sultan sett vel heit á sótthreinsaðar krukkur þá þétta þær sig sjálfar.
 |




|