Uppskriftir




|
Gratineraður humar.
Forréttur fyrir: 4.
24 stk. Humar í skél, frekar stórir halar skornir eftir endilöngu og görnin fjarlægð.
300 gr. Hvítt brauð
8 stk. Hvítlauksrif, söxuð fínt.
2-4 msk. Steinselja söxuð smátt.
200 gr. Brætt smjör.
Salt og pipar.
Humar raðað ofnskúffu, fiskurinn upp.
Brauð, hvítlaukur og steinselja sett í matvinnsluvél og saxað saman, kryddað að smekk. Blöndunni jafnað í þéttu lagi yfir humarinn í ofnskúffuni.
Bræddu smjörinu dreypt yfir blönduna.
Bakið í ofni við háan yfirhita í nokkrar mínútur. Þar til brauðið hefur fengið gullin lit.
Borið fram með léttristuðu brauði.

|




|