-

................................ ... ..PPUppskriftir - Lambakjöt
-

Heim

Fiskur

Fuglar

Kjöt

Grill

Grænmeti

Ávextir

Súpur

Pasta

Bakstur

Drykkir

Tilboðin

Tenglar

-

Uppskriftir

. Grillaðar Lambakótilettur með Papriku.
. Lambalæri með ................grænmeti.
. Lifrarpylsa.
. Blóðmör.
. Fín Lambalifur.
. Lambalæri með hvítlauk.
. Lambalæri með --------- - - - - - - - einiberjum.

-

. Aðalréttir
. Forréttir
. Eftirréttir
. Skyndiréttir
. Smáréttir
. Meðlæti
. Pasta
. Grænmeti
. Ávextir
. Súpur/ sósur
. Krydd
. Fróðleikur

-

Lystugur piltur

-

 

 

 

 

 

-

 

grillaðar lambakótilettur .

Grillaðar Lambakótilettur með Papriku.

12 stk. Kótilettur
1 Stk. Paprika græn
1 stk. Paprika rauð
2 stk. Hvítlauksgeirara
2 stk. Rósmaringreinar
2 stk. Marjoramgreinar
Salt og pipar
Olía
Merjið kryddið t.d. í mortel ásamt hvítlauk og olíu og núið því á kótiletturnar. Paprikur settar á tein og ristaðar yfir grillinu þar til þær sviðna á öllum hliðum, þá er hýðinu flétt af þeim og þær skornar í tvent og fræhreinsaðar, penslið með olíu. Kótiletturnar settar á heitt grillið ásamt paprikunum og steikt í u.þ.b. 5 mín. á hvorri hlið. Berið fram funheitt ásamt grilluðum kartöflubátum og góðu saltati.
 
Aftur upp.
Aftur upp.
-



Lambalæri með grænmeti.

Lambalæri með grænmeti.

Innihald
1 1/2 kg. Lambalæri
500 gr. Kartöflur
500 gr. Sætukartöflur
500 gr. Gulrætur
2 stk.Laukar
2 stk. Rauðlaukar
3 stk. Hvítlaukar
2 kvistir Rósmarín
2 kvistir Timían
1 dl. Kjötsoð
1 stk. Sítróna
1/2dl. Ólífuolía
Salt og pipar
Aðferð
Kartöflur þvegnar, þerraðar og skornar í nokkuð stóra báta. Hreinsið gulrætur, afhýðið lauka og skerið í sambærilega bita. Setjið grænmetið í ofnskúffu, dreypið olíu yfir, blandið saman og kryddið með salti og pipar. Fituhreinsið og þerrið lærið, kreistið sítrónuna og smyrjið safanum á lærið ásamt steyttum kryddjurtunum, salti og pipar. Steikið í 200°C heitum ofni í u.þ.b. 30 mín. bætið þá gróft skornum hvítlauknum yfir grænmetið og eldið áfram í álíka tíma, eða þar til kjarnhiti mælist 60°C. Takið kjötið út og látið standa í ca. 10 mín. til að halda kjötsafanum í steikinni.
 
Aftur upp.
Aftur upp.
-

Lambalæri með hvítlauk.

1 stk. Lambalæri
2-3 hvítlauksrif
1 stk. rauðlaukur
150 gr. smjör
1 dl. rauðvín
2 msk. sítrónusafi
salt og pipar
Smátt saxaður laukur mýktur á pönnu í örl. klípu af smjöri, varist að laukurinn brúnist. Rauðvíni bætt út í og allt soðið rólega í 3 - 4 mín. Látið kólna, hrærið lauknum saman við mjúkt smjörið og bragðið til með sítrónusafa, salti og nýmöluðum pipar.  Beittum hnífi stungið hér og þar í kjötið. Hvítlaukur skorinn langsum og bitunum stungið í skurðina. Kryddið kjötið vel með salti og pipar. Eldið á vel heitu grilli í u.þ.b. 20 mín. minnkið þá hitann og steikið áfram í ca. 40 mín. Pennslið með Rauðlaukssmjörinu af og til.
 
Aftur upp.
Aftur upp.
-

Lambalæri með einiberjum.

1 lambalæri
2 tsk. timian
2 tsk. rósmarin
10 stk. einiber
salt og pipar
Einiberin mulin ásamt jurtum, salti og pipar blandað saman við. Kryddinu nuddað vel í kjötið. Lærið brúnað á öllum hliðum í potti með smá olíu. Sett í ofnskúffu og steikt við 110°C í  u.þ.b. 1  til 1 og 1/2 klst. eða þar til kjarnhiti hefur náð 65 °C.

Aftur upp.
Aftur upp.

-

Blóðmör.

1 l. Blóð
2 dl. Vatn
½ msk. Salt
300 gr. Haframjöl
500 gr. Rúgmjöl
500 gr.Mör
Vambir.
Saumaðar vambirnar látnar liggja í köldu saltvatni. Mörinn brytjaður og blóðið síað í gegnum fínt sigti. Vatni og salti hrært saman við blóðið og mjölinu bætt út í, síðast mörnum. Setjið í keppina, hafið þá rúmlega hálf fulla og saumið fyrir opið. Soðið í vel söltu vatni í 3 klst.
ATH. Farið gætilega með blóðið, það eru mjög góð skilyrði fyrir gerla í því.
Blóð er ríkt af próteini og járni.
Aftur upp.
Aftur upp.

-

Lifrarpylsa.

450 gr. Lifur
100 gr. Nýru
3 dl. Kjörsoð
½ msk. Salt
100 gr. Haframjöl
100 gr. Rúgmjöl
100 gr. Hveiti
300 gr. Mör
Vambir
Saumaðar vambirnar látnar liggja í köldu saltvatni. Mörinn brytjaður. Lifur og nýru þvegin himnur og sinar hreinsað burt, hakkið fínt. Soði og salti bætt út í, síðan er mjölinu bætt saman við og hrært vel. Hafið blönduna frekar þykka. Setjið í rúmlega hálf fulla keppi. Saumið vel fyrir opið. Sjóðið í vel söltu vatni í 3 kls

 

Aftur upp.
Aftur upp.

-

Fín Lambalifur.

500 gr. Lambalifur
2 stk. laukar
75 gr. smjör
kryddlögur
1 dós hrein jógúrt
1-1/2 dl. Vatn
4 msk. tómatsósa
½ paprika
1 tsk. Sykur
Salt og pipar
Skerið lifur í ræmur, blandið kryddlög og leggið lifrina í, látið bíða í u.þ.b. 30 min. þá tekin úr kryddleginum og þerruð vel. Saxaður laukur mýktur á pönnu, takið til hliðar. Lifrin steikt í olíu á vel heitri pönnu í örlitla stund, varist að ofelda. Hellið kryddleginum og lauknum yfir. Berið fram með salati og góðum kartöflum.
Aftur upp.
Aftur upp.

-

-

Góður mais.

-

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

-

 

Til baka

Senda póst.

 

Síðast uppfært: 09.04.2009

Vefurinn er í stöðugri vinnslu og endurnýjun.


Maturinn.com er með hýsingu hjá KIOSK.ws
 
Maturinn.com
Elías Stefánsson
Reykjavík.
Sími: 695 2724
maturinn@maturinn.com