

|
Guacamole.
1/2 lítill laukur
4 tómatar, flysjaði, hreinsaðir og saxaðir fínt
1 ferskur chillepipar grænn saxaður
1/2 paprika, græn, söxuð fínt
1 msk. saxaður kóríander
2 avókadó vel stór
2 tsk. sítrónusafi
1 msk. ólífuolía
salt og pipar
Lauk, tómötum, chilliepipar, papriku og kóríander blandað saman í skál. Skerið avókadóin langsum í tvennt og steinn fjarlægður, takið aldinkjötið úr með skeið. Stappið gróft saman við tómatahræruna. Bætið salti, pipar og sítrónusafa og að síðustu olíunni saman við og hrærið vel.
|




|