-

................................... ... ... ... ..PPUppskriftir..... -

Heim

Fiskur

Fuglar

Kjöt

Grill

Grænmeti

Ávextir

Súpur

Pasta

Bakstur

Drykkir

Tilboðin

Tenglar

-

Uppskriftir

. Lambalćri međ hvítlauk.
.
Heitt Ítalskt Rúllubrauđ.
. Guacamole.
. Lambalæri með ----------------------einiberjum.
-
. Aðalréttir
. Lambakjöt
. Nautakjöt
. Svínakjöt
. Villibráð
. Forréttir
. Smáréttir
. Meðlæti
. Pasta
. Grænmeti
. Ávextir
. Súpur/ sósur
. Drykkir
. Krydd
. Fróðleikur

Góður grautur

-

Nýjustu uppskriftirnar
lina

Lambalæri með hvítlauk.

1 lambalæri
2-3 hvítlauksrif
1 stk. rauðlaukur
150 gr. smjör
1 dl. rauðvín
2 msk. sítrónusafi
salt og pipar
Smátt saxaður laukur mýktur á pönnu í örl. klípu af smjöri, varist að laukurinn brúnist. Rauðvíni bætt út í og allt soðið rólega í 3 - 4 mín. Látið kólna, hrærið lauknum saman við mjúkt smjörið og bragðið til með sítrónusafa, salti og nýmöluðum pipar.  Beittum hnífi stungið hér og þar í kjötið. Hvítlaukur skorinn langsum og bitunum stungið í skurðina. Kryddið kjötið vel með salti og pipar. Eldið á vel heitu grilli í u.þ.b. 20 mín. minnkið þá hitann og steikið áfram í ca. 40 mín. Pennslið með Rauðlaukssmjörinu af og til.

Aftur upp.
Aftur upp.


-

 

Heitt Ítalskt Rúllubrauð.

1 stk.  rúllubrauð
½ stk. rjómaostur
½ msk. sýrður rjómi 5%
½ bréf pepperóni sterkt
½ bréf skinka
½ stk. græn paprika
½ stk. rauð paprika
¼ stk. rauðlaukur
5 - 8 stk. olívur svartar.
Osti og sýrðum rjóma hrært saman. Allt annað skorið og saxað niður og hrært út í.
Sett inn í rúllubrauðið, það smurt að utan með rjómaosti og skreytt að vild, t.d. með saxaðri papriku. Hitað í ofni við ca. 180°C í u.þ.b. 20 mín. Fleiri smáréttir.
Aftur upp.
Aftur upp.


-
 

Guacamole.

1/2 lítill laukur
4 tómatar, flysjaði, hreinsaðir og saxaðir fínt
1 ferskur chillepipar grænn saxaður
1/2 paprika, græn, söxuð fínt
1 msk. saxaður kóríander  
2 avókadó vel stór
2 tsk. sítrónusafi
1 msk. ólífuolía
salt og pipar
Lauk, tómötum, chilliepipar, papriku og kóríander blandað saman í skál. Skerið avókadóin langsum í tvennt og steinn fjarlægður, takið aldinkjötið úr með skeið. Stappið gróft saman við tómatahræruna. Bætið salti, pipar og sítrónusafa og að síðustu olíunni saman við og hrærið vel. Fleira meðlæti.
Aftur upp.
Aftur upp.


-
 



Lambalæri með einiberjum.

1 lambalæri
2 tsk. timian
2 tsk. rósmarin
10 stk. einiber
salt og pipar
Einiberin mulin ásamt jurtum, salti og pipar blandað saman við. Kryddinu nuddað vel í kjötið. Lærið brúnað á öllum hliðum í potti með smá olíu.
Sett í ofnskúffu og steikt við 110°C í  u.þ.b. 1  til 1 og 1/2 klst. eða þar til kjarnhiti hefur náð 65 °C. Fleiri Lambakjötsréttir.
Aftur upp.
Aftur upp.


-

-

Lystugur piltur

-

 

 

Til baka

Senda póst

 

Síðast uppfært: 04.10.2008

Vefurinn er í stöðugri vinnslu og endurnýjun.


Maturinn.com er með hýsingu hjá KIOSK.ws
Maturinn.com
Elías Stefánsson
Reykjavík.
Sími: 695 2724
maturinn@maturinn.com